Ísland - Hvatningarátak!
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Í vor fer í gang nýtt átak, Ísland komdu með, þar sem Íslendingar eru hvattir til að ferðast innanlands í ár og kaupa vörur og þjónustu. Umferð verður beint inn á vefinn www.ferdalag.is þar sem nálgast má upplýsingar um þá fjölbreyttu þjónustu sem í boði er um allt land.
Allt efni er hugsað þannig að það nýtist fyrir alla landshluta og að aðilar í ferðaþjónustu og aðrir geti auðveldlega nýtt það í sínu eigin markaðsefni og aðgerðum.
Undirbúum okkur vel og hámörkum áhrif átaksins í sameiningu. Kynningarbréf til ferðaþjónustuaðila
Efni til notkunar
Hér má finna efni sem ferðaþjónustufyrirtæki geta nýtt í tengslum við átakið. Efnið smanstendur af:
- Merki fyrir Komdu með átakið bæði fyrir prent- og skjámiðla.
- Rammar í öllum helstu stærðum fyrir færslur á samfélgasmiðla.
- Merki fyrir Ferðagjöf bæði fyrir prent- og skjámiðla
- Litagildi
Ferðagjöf - kynning fyrir ferðaþjónustufyrirtæki
Ferðamálastofa, í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og Stafrænt Ísland, stendur fyrir rafrænum upplýsinga- og kynningarfundum vegna Ferðagjafar. Útskýrt er hvernig fyrirtæki skrá sig skref fyrir skref, sem og hvernig einstaklingar sækja Ferðagjöfina sína. Þetta er gert til að styðja við og þjónusta ferðaþjónustufyrirtæki eins vel og unnt er. Skoða má kynningu frá fundunum hér að neðan en auk þess verður kynningarmyndband sett hér inn fljótlega.
Kynningarmyndband
Efni frá kynningarfundi 26. maí
- Andri Heiðar Kristinsson og Þórhildur Gunnarsdóttir - Frá Stafrænt Ísland / Parallel ráðgjöf
kynntu Ferðagjöfina, smáforritið og þá hlið sem snýr að fyrirtækjunum. - Halldór Arinbjarnarson - Ferðamálastofa
kynnti uppfærslu á Ferðalag.is og tengingu við Ferðagjöf.
- Oddný Þóra Óladóttir - Ferðamálastofa
kynnti niðurstöður úr nýrri könnun á vegum Ferðamálastofu um ferðaáform Íslendinga árið 2020
- Könnunin í heild
- Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar stýrði fundinum, sem var í beinu streymi á Facebook-síðu Ferðamálastofu. Þar má nú nálgast upptöku af fundinum
Efni frá kynningarfundi 27. apríl
- Kynning: Elías Bj. Gíslason - Ferðamálastofa
- Kynning: Hreiðar Þór Jónsson Brandenburg/Datera
- Upptaka frá fundinum
Hvernig laða ég Íslendinga að?
Nú þegar fyrirséð er að Íslendingar verða í meirihluta ferðamanna í sumar er vert að ferðaþjónustan velti fyrir hvernig best er að þjóna þessum hópi. Hér að neðan nokkrar ábendingar sem vert er að hafa í huga:
- Hafið kynningarefni í íslensku
- Verið með verðlista í íslenskum krónum
- Kennið starfsfólki ykkar sem ekki talar íslensku í það minnsta að bjóða góðan dag, gott kvöld, góða nótt, góða ferða og takk fyrir. Sjá orðalista frá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar
Hvað er tilboð?
Hver þiggur ekki gott tilboð? Tilboð geta verið margskonar og mikilvægt að hafa hugfast að þau þurfa alls ekki að vera í formi verðtilboða. Mikilvægast er að hvetja til viðbótarsölu. M.ö.o. að veita ekki afslátt af grunnverði heldur að leggja sig fram um að fá gesti til að stoppa lengur, borða oftar, gera meira á svæðinu og þannig auka tekjur. Mikilvægt er að muna að sé þjónusta seld sem pakkaferð þarf ferðaskrifstofuleyfi.