Fara í efni

Hagsmunir tengdir ferðamennsku norðan Vatnajökuls

Nánari upplýsingar
Titill Hagsmunir tengdir ferðamennsku norðan Vatnajökuls
Undirtitill Skýrsla
Lýsing

Í þessari skýrslu er fjallað um hagsmuni tengda ferðamennsku norðan Vatnajökuls, tillögur sem fram hafa komið um landnýtingu á þessu svæði og helstu atriði sem talin eru skipta máli varðandi skipulag ferðamennsku á svæðinu. Hér er um tvö viðfangsefni að ræða. Hið fyrra er að skilgreina hagsmuni tengda ferðamennsku á hálendinu norðan Vatnajökuls. Hið síðara er að greina hvort slíkir hagsmunir fara saman við hagsmuni náttúruverndar og virkjana. Greint er frá aðferðum sem hægt er að beita við mat á hagsmunum ferðamennsku, taldir eru upp helstu kostir sem í stöðunni eru og óvissuþættir hvers þeirra. Í framhaldi af því eru settar fram tillögur um rannsóknir sem nýtast myndu til upplýstrar ákvarðanatöku.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Anna Dóra Sæþórsdóttir
Flokkun
Flokkur Umhverfismál og sjálfbærni
Útgáfuár 2000
Útgefandi Ferðamálaráð Íslands
Leitarorð Skilgreiningar og hugtök, auðlindir, umhverfisgæði, víðerni, náttúra, ferðamennska, ferðamenn, þolmörk, byggðaþróun, jaðarsvæði, virkjunarhugmyndir, Jökulsá á Brú, Jökulsá á Fljótsdal, Jökulsá á Fjöllum, áhrifasvæði virkjana, tillögur um náttúruvernd, Snæfellsþjóðgarður, Vatnajökulsþjóðgarður, hálendisþjóðgarður og eldfjallaþjóðgarður, ferðamennska norðan Vatnajökuls, ferðavenjur Íslendinga, verðmæti ferðamanna, mat á hagsmunum ferðamennsku, mismunandi forsendur skipulags, náttúruvernd, tillögur um frekari rannsóknir.