Fara í efni

Skýrsla ferðamála-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra um þolmörk ferðamennsku

Nánari upplýsingar
Titill Skýrsla ferðamála-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra um þolmörk ferðamennsku
Lýsing

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, lagði í apríl 2018 fram á Alþingi skýrslu um þolmörk ferðamennsku.

Í skýrslunni er sett fram heildstæð úttekt á niðurstöðum rannsókna á sviði þolmarka ferða­mennsku á Íslandi. Lögð er fram tillaga um mótun verkferils sem getur gert stjórnun áfangastaða skilvirkari og þannig stuðlað að sjálfbærri þróun ferðaþjónustu hér á landi.

Þær þolmarkarannsóknir sem hafa verið framkvæmdar sýna að staða mála er mjög mismunandi eftir stöðum og landshlutum. Þolmörkum af ýmsu tagi hefur til dæmis nú þegar verið náð á ákveðnum stöðum fyrir töluverðu síðan, einkum á Suðurlandi þar sem álagið vegna fjölda ferðamanna er mest.

Gripið hefur verið til ýmissa aðgerða á undanförnum árum til bættrar dreifingar ferðamanna yfir árið og um landið. Fjölmörg verkefni og áætlanir eru enn fremur í smíðum sem miða að bættri stýringu og skipulagi m.t.t. ferðamennsku. Skýrslan sýnir að nota má hugtakið þolmörk til að byggja undir markvissa ákvarðanatöku um skipulag og stýringu á áfangastöðum ferðamanna, með því að móta verkferil byggðan á vísindalegum grunni þolmarkarannsókna.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Umfang og áhrif
Útgáfuár 2018
Útgefandi Alþingi
Leitarorð þolmörk, þolmörk ferðamennsku, umhverfi, umhverfismál, félagsleg þolmörk, innviðir, vistkerfi, áfangaskýrsla, viðhorf, upplifun, ráðherra, skýrsla ráðherra, alþingi