Fara í efni

Stefnumótun í ferðaþjónustu á Vestfjörðum

Nánari upplýsingar
Titill Stefnumótun í ferðaþjónustu á Vestfjörðum
Undirtitill Skýrsla
Lýsing Árið 1988 var gerð skýrsla um stöðu ferðamála á Vestfjörðum af Sigurborgu Kr. Hannesdóttur, sem nú er hótelstjóri á Hótel Valaskjálf. Verkefnið var unnið fyrir Fjórðungssamband Vestfirðinga. Mjög margt athyglisvert kom fram í þessari skýrslu og miklar upplýsingar um hver staða ferðaþjónustunnar er á Vestfjörðum. Í framhaldi af þessari vinnu samþykkti Fjórðungsþing Vestfirðinga, sem haldið var haustið 1990, að vinna að gerð grunnáætlunar um framkvæmdaþörf á sviði ferðamála á Vestfjörðum. Ákveðið var að Ferðamálasamtök Vestfjarða og Iðnráðgjafi Vestfjarða stæðu saman að stefnumótun í ferðaþjónustu fyrir fjórðunginn. Þessir aðilar leituðu síðan eftir samstarfi við Iðntæknistofnun Íslands. Verkefnið var kostað af Fjórðungssambandi Vestfirðinga, Byggðastofnun, Iðntæknistofnun Íslands og Ferðamálaráði Íslands, auk héraðsnefnda í Vestfirðingafjórðungi.
Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Anna G Edvardsdóttir
Flokkun
Flokkur Stefnumótun og skipulag
Útgáfuár 1992
Leitarorð Stefnumótun, ferðaþjónusta, skilgreining, Vestfirðir, vöru- og markaðslíkan, innri greining, mat hagsmunaaðila, ytri greining, mat ferðamanna, samanburður, stefna næstu ára, framkvæmdaráætlanir, ályktanir.