Fara í efni

Stefnumótandi skipulagsgerð og mörkun svæða

Nánari upplýsingar
Titill Stefnumótandi skipulagsgerð og mörkun svæða
Lýsing

Ritinu er ætlað að skýra tengslin á milli skipulagsgerðar á svæðisvísu og þeirrar greinar sem kallast á ensku place branding eða regional branding. Á íslensku hefur greinin verið nefnd mörkun svæða, ímyndarsköpun svæða eða einfaldlega „að branda“ svæði.

Þeim aðferðum sem fjallað er um í ritinu hefur einkum verið beitt við þróun og markaðssetningu ferðamannastaða og -svæða og þar með eflingu ferðaþjónustu, en er nú beitt við byggðaþróun í æ ríkari mæli. Áherslan er þá á að skilgreina tengsl íbúa við sitt svæði og móta mark - brand - svæðisins á grunni þess.

Í formála ritsins segir m.a.: „Mark lýsir þeirri upplifun sem svæði býður, t.d. út frá sérkennum í umhverfi og menningu og þeirri þjónustu sem er í boði. Markinu er ætlað að stuðla að skýrri og samræmdri kynningu á svæðinu í þeim tilgangi að laða að ferðamenn, fyrirtæki, fjárfesta og nýja íbúa. Til þess að mark þjóni tilgangi sínum þarf að tryggja að stefnumótun um þróun svæðis taki mið af því og styðji við það. Stefnan – og framfylgd hennar – getur tekið til landnotkunar, mannvirkjagerðar og almennrar umhverfismótunar sem og atvinnulífs og menningarmála.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Matthildur Kr. Elmarsdóttir
Flokkun
Flokkur Stefnumótun og skipulag
Útgáfuár 2015
Útgefandi Alta ehf.
Leitarorð stefnumótun, stefnumörkun, skipulag, skipulagsgerð, svæðisskipualag, svæði, mark, mörkun, brand, branding, markaðssetning