Fara í efni

Ferðafólk og Geótúrismi í nágrenni Dyrfjalla

Nánari upplýsingar
Titill Ferðafólk og Geótúrismi í nágrenni Dyrfjalla
Lýsing Þessi skýrsla er gerð í framhaldi af tveimur vinnufundum á Borgarfirði eystri og könnun sem gerð var meðal ferðafólks á staðnum sumarið 2010. Fyrri vinnufundurinn var haldin dagana 27.-28. febrúar 2008 og bar yfirskriftina Náttúrutengd ferðaþjónusta í heilbrigðu umhverfi. Sá síðari var haldin 11. nóvember 2010 undir yfirskriftinni Dyrfjöll Náttúrugarður: Samfélag ? Náttúra ? Ferðaþjónusta. Báðir höfðu vinnufundirnir það að markmiði að þróa ferðaþjónustu, sem byggir á auðlindum svæðisins, sem atvinnutækifæri fyrir heimamenn. Mun þessi skýrsla fjalla um möguleika slíkrar þróunar undir formerkjum geótúrisma, en jafnframt leitast við að lýsa ferðafólki sem þegar sækir Borgarfjörð eystri heim byggt á þeirri könnun sem framkvæmd var á staðnum sumarið 2010. Einnig verður stuðst við kannanir sem gerðar voru meðal ferðafólks á staðnum sumarið 1999 og 2002 og þær bornar saman við þá frá 2010 eins og kostur er.
Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Edward H. Huijbens
Flokkun
Flokkur Stefnumótun og skipulag
Útgáfuár 2010
Útgefandi Rannsóknamiðstöð ferðamála
ISBN 978-9979-834-85
Leitarorð Borgarfjörður eystri, geótúrismi, vöruþróun, jarðminjar