Fara í efni

Álagsmat umhverfis, innviða og samfélags gagnvart fjölda ferðamanna á Íslandi - 1. áfangi: Þróun vísa fyrir álagsmat

Nánari upplýsingar
Titill Álagsmat umhverfis, innviða og samfélags gagnvart fjölda ferðamanna á Íslandi - 1. áfangi: Þróun vísa fyrir álagsmat
Lýsing

Haustið 2017 hófst vinna á vegum Stjórnstöðvar ferðamála við álagsmat efnahags, umhverfis og samfélags gagnvart fjölda ferðamanna á Íslandi.  Áhersla var lögð á að vinna að uppsetningu verkefnisins í samráði við ráðgjafa, sérfræðinga og hagsmunaaðila. Vorið 2018 voru skipaðir fjórir vinnuhópar til að auka innsýn í einstök fagsvið sem tengjast ferðaþjónustu og auka samráð við ráðuneyti, stofnanir, fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila, ásamt því að styrkja tengsl ólíkra aðila við vinnu þessa verkefnis. Áður en vinnuhóparnir komu að verkefninu vann EFLA verkfræðistofa og ráðgjafafyrirtækin Tourism, Recreation, Conservation (TRC) frá Nýja Sjálandi og Recreation and Tourism Science (RTS) frá Bandaríkjunum, drög að sjáflbærnivísum. Hlutverk vinnuhópanna var að taka vinnu EFLU, TRC og RTS til umfjöllunar, rýna tillögur að sjálfbærnivísum og gefa yfirlit yfir aðgengileg gögn sem gætu nýst við gildissetningu vísanna.

Niðurstöður í áfangskýrsu

Fjallað er um afrakstur þessarar vinnu í Áfangaskýrslu 1: Þróun vísa fyrir álagsmat. Með útgáfu hennar er fyrri áfanga þessa verkefnis lokið.

Hvað verður gert í seinni áfanga

Í seinni áfanga verkefnisins verður sjálft álagsmatið framkvæmt þar sem sjálfbærnivísarnir sem kynntir eru í skýrslunni verða gildissettir. Lokatakmarkið er að hægt sé að gera greiningu á helstu áhrifaþáttum og álagspunktum til að öðlast skýra mynd af því hvort flöskuhálsar hafi myndast eða kunni að myndast í framtíðinni og hvenær sjálfbært jafnvægisástand ríki. Þetta álagsmat mun nýtast við mótun framtíðarstefnu Íslands sem áfangastaðar.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Stefnumótun og skipulag
Útgáfuár 2018
Útgefandi Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, Stjórnstöð ferðamála
Leitarorð þolmörk, álag, álagsmat, fjöldi ferðamanna, efla, stjórnstöð ferðamála, sjálfbærni, sjálfbærnivísar, innviðir, samfélag, umhverfi