Fara í efni

Áfangastaðaáætlun Vesturlands 2021-2023

Nánari upplýsingar
Titill Áfangastaðaáætlun Vesturlands 2021-2023
Lýsing

Áætlunin er gerð að frumkvæði stjórnvalda, en unnin af stoðþjónustu ferðamála á umræddu svæði, í samstarfi við sveitarfélög, heimafólk og hagaðila á hverjum stað. Markmiðið með áfangastaðaáætlun er að móta sameiginlega sýn og samræmdar áherslur varðandi stýringu, skipulag og stefnu um þróun ferðamála og uppbyggingu innviða á tilgreindu svæði.

Í vinnu við áfangastaðaáætlun er lögð áhersla á að ná góðri yfirsýn á stöðu mála á hverju svæði. Til dæmis hvað varðar legu lands og byggðamunstur, sérstöðu og sérkennum þess, menningu, innviðauppbyggingu og þróun ferðamála. Með því er hægt að vinna markvisst að aukinni samvinnu með áherslu á sérstöðu landshlutans og eflingu allra svæða. Auk þess er mörkuð stefna og settar fram þær áherslur og leiðir sem fyrirhugað er að hafa að leiðarljósi við uppbyggingu, framþróun og stýringu á hinum ýmsu ferlum sem hafa áhrif á og ráða þróun og gæðum áfangastaðarins og atvinnugreinarinnar á umræddu svæði.

Áætlunin stuðlar þannig að jákvæðum framgangi ferðamála, samræmdri upp-byggingu innviða og virkri vöruþróun, en er einnig góður grunnur aukinni samkennd, samráði og samstarfi. Áfangastaðaáætlun Vesturlands 2020-2023 byggir á fyrri áfangastaðaáætlun sem gefin var út í upphafi árs 2019. Markvisst hefur verið unnið eftir þeirri stefnumótun, markmiðum og aðgerðaáætlun sem þar var lögð fram, ásamt því að vinna eftir áherslum og stefnumótun stjórnvalda varðandi framvindu ferðamála- og áfangastaðavinnu á Íslandi.

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Stefnumótun og skipulag
Útgáfuár 2021
Útgefandi Áfangastaðastofa Vesturlands
Leitarorð dmp, Vesturland, áfangastaðaáætlun, áfangastaðaáætlanir, markaðsstofa Vesturlands, ferðamálastofa, áfangastaðastofa Vesturlands