Fara í efni

Áætlun um ferðamennsku á miðhálendi Íslands: Niðurstöður rannsókna

Nánari upplýsingar
Titill Áætlun um ferðamennsku á miðhálendi Íslands: Niðurstöður rannsókna
Lýsing

Hér eru teknar saman skýrslur og aðrar ritsmíðar sem unnar hafa verið í verkefninu „Áætlun um
ferðamennsku á miðhálendi Íslands“. Skýrslan er samsett af yfirliti yfir verkefnið og 8 viðaukum
sem eru m.a. skýrslur og greinar sem þegar hafa verið skrifaðar um ákveðna þætti þess og ekki
þótti ástæða til að skrifa upp aftur í eina samfellda skýrslu. Saman gefa yfirlitið og viðaukarnir
heildayfirlit yfir verkefnið. Í viðaukum eru auk þess framvinduskýrslur verkefnisins og samningur
milli þáverandi iðnaðarráðuneytis og Háskóla Íslands um fjármögnun þess og framkvæmd.
Verkefnið „Áætlun um ferðamennsku á miðhálendi Íslands“ miðar að því að afla
vísindalegra gagna sem notuð yrðu í stefnumótun fyrir ferðamennsku á miðhálendinu þannig að
hægt væri að setja fram áætlun um hvernig nýta ætti miðhálendið til fjölbreytilegrar útivistar og
ferðamennsku án þess að gengið sé á auðlindina. Verkefnið var unnið undir stjórn Önnu Dóru
Sæþórsdóttur og Rögnvalds Ólafssonar við Háskóla Íslands í samvinnu við og með stuðningi
Ferðamálastofu og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins (áður iðnaðarráðuneytis).

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Rögnvaldur Ólafsson
Nafn Anna Dóra Sæþórsdóttir
Flokkun
Flokkur Stefnumótun og skipulag
Útgáfuár 2012
Útgefandi Land- og ferðamálafræðistofa, Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands
ISBN 978-9979-9976-6-5
Leitarorð hálendið, þolmörk, víðerni, miðhálendi, skiulagsmál, skipulag, umhverfismál, umhverfi, áhrif, friðland