Fara í efni

Akureyrarflugvöllur - Millilandaflugstöð

Nánari upplýsingar
Titill Akureyrarflugvöllur - Millilandaflugstöð
Lýsing

Útdráttur:

Í árslok 2019 undirrituðu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra viljayfirlýsingu um frekari uppbyggingu á 
Akureyrarflugvelli sem gátt inn til landsins í þágu svæðisins og íslenskrar ferðaþjónustu. Í framhaldi af yfirlýsingunni skipaði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra aðgerðahóp sem leggja skildi mat á þörf fyrir aðstöðu og þjónustu í flugstöð á Akureyrarflugvelli.

Markaðsstofa Norðurlands og Isavia hafa unnið markvisst að markaðssetningu Norðurlands sem áfangastaðar með beinu millilandaflugi um Akureyrarflugvöll
og stefna að því að auka umferð millilandafarþega um Akureyrarflugvöll umtalsvert á næstu árum. Núverandi flugstöð er of lítil og aðstaða ófullnægjandi og voru skoðaðar nokkrar sviðsmyndir til úrbóta.

Niðurstaða hópsins er að ekki sé hægt að aðlaga núverandi flugstöð og afgreiða þar millilanda- og innanlandsflug samtímis, með viðunandi hætti og leggur hann til að ráðist verði í hönnun 1.000 m2 viðbyggingar svo hægt verði að afgreiða 220 sæta millilandavél á innan við klukkutíma samhliða 70 sæta innanlandsvél. Um verði að ræða viðbyggingu við núverandi flugstöð og hönnunin verði sveigjanleg þannig að auðvelt verði að stækka bygginguna og breyta nýtingu einstakra svæða. Kostnaður er áætlaður um 900 m.kr. og lagt til að strax verði ráðist í hönnun, færslu olíutanka og jarðvinnu þannig að hefja megi byggingarframkvæmdir strax að hönnun lokinni. Áætlað er að við framkvæmdina verði til um 50 ársverk

Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Flokkun
Flokkur Samgöngur
Útgáfuár 2020
Útgefandi Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið
ISBN 978-9935-494-05-4
Leitarorð akureyri, akureyrarflugvöllur, flugvöllur, flugvellir, flugstöð, millilandaflug, alþjóðaflugvöllur, alþjóðaflugvellir, isavia