Fara í efni

Ferðamenn á Vestfjörðum sumarið 2008

Nánari upplýsingar
Titill Ferðamenn á Vestfjörðum sumarið 2008
Lýsing Sumarið 2008 stóð Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og Markaðsstofa Vestfjarða fyrir könnun á ferðamönnum. Farið var víða um Vestfirði og lagður fyrir ferðamenn spurningalisti þar sem meðal annars var spurt um ástæður komu, upplýsingaöflun, nýtingu og ánægju með þjónustu á Vestfjörðum sem og ánægju með ferðina í heild. Könnunin gefur mynd af því hvernig ferðamenn koma til Vestfjarða, hvar þeir eru líklegir til að leita sér upplýsinga og hverju þeir hafa helst áhuga á að kynnast eða upplifa á ferð sinni um Vestfirði. Þá er leitast við að skýra hvaða þættir hafa helst áhrif á ánægju ferðamannanna. Niðurstöðurnar gefa til kynna að náttúruferðamenn séu afgerandi hópur á Vestfjörðum og að þeir ferðamenn sem hingað koma séu almennt ánægðir með ferðina. Það má þó lengi bæta og gefa niðurstöður könnunarinnar vísbendingar um að enn megi bæta aðgengi ferðamanna að upplýsingum og afþreyingarmöguleika á svæðinu.
Skráarviðhengi
Ná í viðhengi
Höfundar
Nafn Albertína Friðbjörg Elíasdóttir
Flokkun
Flokkur Ferðavenjur
Útgáfuár 2008
Útgefandi Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands
Leitarorð vestfirðir, ferðahegðun, markaðsstofa vestfjarða, háskóli íslands, könnun, spurningakönnun,