Rannsóknaráætlun 2022-2024
Í reglugerð nr. 20/2020 um gagnaöflun og rannsóknir á sviði ferðamála er kveðið á um að Ferðamálastofa skuli móta og láta framkvæma rannsóknaráætlun til þriggja ára í senn. Rannsóknaráætlun stofnunarinnar fyrir tímabilið 2022-2024 liggur nú fyrir og verið staðfest af ferðamálaráðherra. Áætlunina má nálgast hér að neðan.
Fyrri áætlanir:
Ráðgjöf um rannsóknarverkefni 2022-24
Liður við undirbúning og gerð rannsóknaráætlunarinnar er aðkoma ráðgefandi nefndar um gagnaöflun og rannsóknir. Með samsetningu nefndarinnar er leitast við að draga að vísindalega þekkingu, kunnáttu og sérfræði hagsmunaðila í greininni.
Fyrir tímabilið 2022-2024 voru skipuð í nefndina:
- Dr. Ragnar Árnason, prófessor emeritus við Háskóla Íslands
– tilnefndur af Ferðamálastofu, formaður. - Ingibjörg Sigurðardóttir, deildarstjóri og lektor við Háskólann á Hólum
– tilnefnd af samstarfsnefnd háskólastigsins. - Dr. Gunnar Þór Jóhannesson, prófessor við Háskóla Íslands
– tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins. - Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
– tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. - Vilborg Helga Júlíusdóttir, hagfræðingur SAF
– tilnefnd af Samtökum ferðaþjónustunnar. - Hildur Kristjánsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu ferðamála og nýsköpunar
– tilnefnd af ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. - Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu
–tilnefndur af samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Nefndin fjallaði um ráðgjöf sína um verkefni fyrir rannsóknaráætlun áranna 2022-24 fimm fundum á tímabilinu 14.4. til 23.6.2021 og má nálgast hana hér að neðan. Ráðgjöfin skiptist í fjóra hluta:
I. forsendur ráðgjafarinnar
II. verkefni í vinnslu
III. ný verkefni
IV. önnur atriði sem nefndin vill koma á framfæri.