Hér er hægt að kynna sér gögn sem söfnuðust í verkefninu „Kortlagning auðlinda íslenskrar ferðaþjónustu“ þar sem með aðstoð heimafólks var metið mögulegt aðdráttarafl og fleiri þættir á áhugaverðum viðkomustöðum á þeirra svæði. Aukaafurð þess verkefnis var síðan gagnasafn um þá staði sem nefndir eru í Íslendingasögunum. Þá má nefna safn sem sýnir upptökustaði þekktra erlendra kvikmynda og þátta hérlendis og úthlutanir Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða frá upphafi. Loks er það þjónustugrunnur Ferðamálastofu með upplýsingum um rúmlega þrjúþúsund ferðaþjónustuaðila um allt land. |
||