Úlfarsfell frá skógræktinni Gönguleið
Falleg hringleið um skógræktina í Hamrahlíð upp á Úlfarsfell, með víðáttumiklu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Mosfellsbær
Upphafspunktur
Skógræktin í Hamrahlíð, vesturhlíð Úlfarsfells
Merkingar
- Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
- Skilti við upphaf leiðar
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
- Möl
- Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Tröppur á bröttustu köflum. Getur verið hvasst og hált á toppi.
Hættur
Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Bílastæði við upphaf. Gestabók á toppi.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Úlfarsfell er eitt vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og um fjallið liggur fjöldi merktra göngustíga. Þessi hringleið hefst við skógræktarsvæðið í Hamrahlíð, í vesturhlíðum Úlfarsfells, þar sem góð bílastæði eru.
Gengið er fyrst um skóginn í Hamrahlíð, sem Skógræktarfélag Mosfellsbæjar hefur umsjón með. Skógrækt hófst á svæðinu á fyrri hluta 20. aldar og þar má meðal annars finna birki, sitkagreni og rauðgreni. Frá skóginum er fylgt merktum stígum upp hlíðar Úlfarsfells og áfram á hæsta tind fjallsins, sem auðvelt er að þekkja á fjarskiptamöstrunum.
Af toppnum er víðáttumikið útsýni yfir höfuðborgarsvæðið og nágrenni. Á leiðinni niður er fylgt vönduðum stígum og tröppum sem auðvelda för um bröttustu kaflana. Að lokum liggur leiðin undir hlíðum Úlfarsfells, meðfram hitaveitustokki og aftur að skógræktarsvæðinu í Hamrahlíð.