Þingmannahnjúkur Gönguleið
Nokkuð þægileg fjallganga með fallegu útsýni yfir Eyjafjörð og Akureyri.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Eyjafjarðarsveit
Upphafspunktur
.
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
- Gras
- Þýft
- Votlendi
Hindranir
- Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
- Vatnsrás - skurður eða renna til að ræsa fram vatni
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gönguleiðin sem hér er lýst er sú sem í daglegu tali er kölluð Þingmannahnjúkur og er á nokkuð áberandi hnjúk austan í Vaðlaheiði. Hinn eiginlegi Þingmannahnjúkur er þó nokkru innar á heiðinni. Frá Akureyri er ekið austur yfir Leirubrú, þaðan sem hnjúkurinn blasir við, beygt til hægri áleiðis fram í Eyjafjarðarsveit og aftur til vinstri eftir um 2 km leið. Upphaf leiðarinnar er við afleggjara að bænum Eyrarlandi en þar er ekki bílastæði og því er tilvalið að leggja bílum á aflögðum malarvegi aðeins neðar (við gatnmamót Knarrarbergsvegar). Fyrsti hluti leiðarinnar er norðan við gildrag þar sem rennur lítil lækur en fljótlega er sveigt til hægri og farið yfir lækinn. Eftir tæpan kílómetra tekur leiðin áberandi sveig til hægri og eftir það fer brattinn að aukast upp hlíðina. Eftir röskan kílómetra til viðbótar er komið á gamlan vegarslóða sem liggur upp undir sjálfan hnjúkinn. Þaðan er síðan síðasti spölurinn nokkuð brattur. Leiðin er all vel stikuð, telst nokkuð þægileg fjallganga og við flestra hæfi.