Stjörnuhlaupshringurinn frá Miðgarði Hlaupaleið

Utanvegahlaupaleið Garðabæjar megin í Heiðmörk, keppnisleið hins árlega Stjörnuhlaups. Um 11 km hringur frá íþróttahúsinu Miðgarði um útivistarskógana í Smalaholti og Sandahlíð og land Vífilsstaða. Hækkun fyrri hlutann, lækkun til baka. Þjappaðir moldar- og malarstígar í fallegu landslagi.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Höfuðborgarsvæðið, Garðabær
Upphafspunktur
Bílastæði við Miðgarð (íþróttahús)
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Blandað yfirborð
  • Möl
Hættur
  • Umferð bíla
  • Umferð hrossa
Þjónusta á leiðinni
Salerni
Salerni og bílastæði við íþróttahúsið Miðgarð við upphaf leiðar.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Þessi leið er keppnisleið Stjörnuhlaupsins, árlegs utanvegahlaups sem Hlaupahópur Stjörnunnar hefur haldið frá árinu 2011. Leiðin liggur Garðabæjar megin í Heiðmörk, í landi Vífilsstaða, og er vinsæl æfingaleið hlaupara á svæðinu. Hringurinn hefst við íþróttahúsið Miðgarð, sem stendur við golfvöllinn í Vetrarmýri. Frá Miðgarði er farið eftir slóð austur undir Hnoðraholti og meðfram golfvellinum inn í útivistarskóga Skógræktar Garðabæjar í Smalaholti og áfram um Sandahlíð. Leiðin er upp í móti fyrstu 5 km með hæsta punkt í 150 metra hæð í hlíðinni ofan við Skátaheimilið. Þaðan er leiðin nánast öll niður í móti, með skemmtilegri og langri lækkun niður að Vífilsstaðavatni og til baka í Miðgarð. Samanlögð hækkun er um 200 metrar. Undirlagið er ekki mjög torfært, heldur að mestu þjappaðir moldarstígar eins og víðast hvar í Heiðmörk, mjúkur hestastígur að hluta og nýir malarstígar. Á einum stað þarf að fara með gát yfir akveg. Að öðru leiti er leiðin er örugg og aðgengileg fyrir öll getustig og hentar vel í æfingahlaup. Á sumardögum er nokkur umferð á stígunum, bæði gangandi og hjólandi. Góð aðstaða er í Miðgarði fyrir og eftir hlaup með salernum og skjóli.