Skrúðgarður og Yltjörn á Húsavík Gönguleið
Gönguleiðin hefst í miðbæ Húsavíkur og þaðan er gengið að Skrúðgarðinum sem liggur meðfram Búðará. Frá skrúðgarðinum er gengið nokkuð suður fyrir bæinn að Yltjörn þar sem hægt er að veiða gullfiska og vaða í volgri tjörninni.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Norðurþing
Upphafspunktur
Bílastæði við Garðarsbraut
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
2 - 3 klukkustundir
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Möl
- Gras
- Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
https://www.northiceland.is/is/afangastadir/baeir-thorp/husavik
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gangan hefst við bílastæðið við Garðarsbraut og þaðan er haldið að Skrúðgarðinum sem liggur meðfram Búðará. Gott er að gefa sér tíma til þess að njóta þess að rölta í gegnum garðinn en þaðan er svo gengið í suðurátt og stefnt að Yltjörn sem er ein fjögurra tjarna sunnan við Húsavík sem kallast Kaldbakstjarnir. Stærst þeirra er Svarðarmýrartjörn, sem blasir við sjávarmegin frá veginum, en austan megin er Yltjörn, næst stærsta tjörnin.
Halda má til suðurs frá garðinum eftir Iðavöllum, beygt til hægri niður Fossvelli að Garðarsbraut og þar gengið til suðurs framhjá Olís yfir Þverholtið og beygt til hægri á stíg sem liggur fyrst niður með Þverholtinu en beygir svo til suðurs. Þar er skilti sem vísar á Yltjörn og er leiðin þangað vel merkt.
Þegar komið er að bílastæðinu við tjörnina liggur stígur meðfram vatninu að neðanverðu og við norðurendann er hægt að ganga til baka til Húsavíkur. Þegar komið er til móts við Norðlenska er farið yfir veginn og gengið eftir stígnum á sjávarbakkanum inn í bæinn og á upphafsstað. Á þessari leið eru margir bekkir og því auðvelt að hvíla lúin bein og njóta útsýnisins yfir flóann. Við Yltjörn eru einnig borð og bekkir og því upplagt að taka með sér nesti og njóta verunnar við volga Yltjörnina, veiða gullfiska eða vaða út í eða taka sundsprett. Gangan er tæpir 10 km en leiðin er vel merkt og stígarnir góðir.