Kópaskersviti Gönguleið
Falleg og auðveld gönguleið út að Kópaskersvita á Grímshafnartanga.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Norðurþing
Upphafspunktur
Fuglaskoðunarskýli á sjávarbakkanum
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Möl
- Gras
- Blandað yfirborð
- Óskilgreint
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
- Engar hættur á leiðinni
- Umferð bíla
- Umferð hjólandi
- Sjávarföll - Breytileg staða sjávar, flóð og fjarða
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
- Tjaldsvæði
https://www.northiceland.is/is/afangastadir/baeir-thorp/kopasker
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Gott er að hefja göngu við fuglaskoðunarskýlið sem er fram á sjávarbakkanum skammt frá versluninni Skerjakollu. Þaðan er gengið eftir götunni smá spöl en svo er hægt að færa sig niður á sjávarbakkann og ganga eftir troðnum stíg þar til komið er að bæjargirðingunni þar sem trappa er yfir hana. Eftir það er hægt að fara alveg niður í fallega sandfjöru áður en haldið er upp á veginn sem liggur að vitanum. Mikið fuglalíf er í sandvíkinni og fallegt að horfa yfir til þorpsins og út á haf. Frá vitanum er hægt að rölta eftir moldarslóða sem liggur yfir gamla flugvöllinn og svo er beygt aftur inn í þorpið og genginn lítill hringur umhverfis það áður en endað er aftur á upphafsstað. Áform eru um að setja stiga ofan í fjöruna nálægt fuglaskoðunarhúsinu og annan á móts við Duggugerði og verður þá hægt að fara víða ofan í fjöru. Margir bekkir eru á gönguleiðinni og því oft hægt að tylla sér og njóta líðandi stundar.