Húsavíkurfjall (Skálatjarnarleið) Gönguleið
A varied hike through woodland trails, across the slopes of Húsavíkurfjall mountain and up to the summit, with panoramic views over Húsavík and Skjálfandi Bay.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Norðurþing
Upphafspunktur
66.0467287,-17.3351112,23
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
- Möl
- Gras
- Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
- Umferð bíla
- Umferð hjólandi
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Fært frá vori og fram eftir hausti eða þar til snjóalög verða of mikil.
Gangan hefst sunnan við (hægra megin við) húsið Ytri-Hlíð í Skálabrekku. Fyrir þau sem koma á bíl er tilvalið að leggja niður við íþróttahöll Húsavíkur sem er þar beint neðan við. Göngustígurinn liggur í byrjun eftir skemmtilegum skógarstíg. Á einum stað eru gatnamót þar sem beygt er til hægri upp eftir stígnum áður en komið er að vélfærum tvíbreiðum stíg þar sem er farið til vinstri. Fljótlega er beygt upp tröppur og þaðan liggur leiðin upp að Skálatjörn sem reyndar er alla jafna þurr yfir sumartímann. Þarna er gengið mest eftir grasstígum þangað til komið er að svokölluðum Fjallshólum en þar hefst aðalhækkunin upp á Húsvíkurfjall. Sá kafli er eftir vegi sem er fær fjórhjóladrifnum ökutækjum og því vert að gæta varúðar. Á toppi fjallsins er skífa þar sem má lesa nöfn á ýmsum nærliggjandi örnefnum. Á góðum degi má sjá til fjögurra sveitarfélaga á toppnum. Það eru Norðurþing, Tjörneshreppur, Þingeyjarsveit og Grímsey sem tilheyrir Akureyri. Frá toppnum liggur leiðin fram af fjallinu hinumegin. Þar er frábært útsýni yfir Botnsvatn og fjöllin Búrfell, Gyðuhnúk og Krubb. Leiðin liggur svo norður fyrir fjallið (Tjörnesmegin) þar til komið er aftur að Fjallshólum. Þaðan er sama leið gengin til baka og komið var frá. Gönguleiðin er fjölbreytt og skemmtileg.