Einkunnir gönguleið

Í Einkunnum er að finna mjög fjölbreytt landslag, dýra-og plöntulíf

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vesturland, Borgarbyggð
Upphafspunktur
N64°59824 W021°911
Erfiðleikastig
Þrep 2 - Miðlungs leið
1 2 3 4
Merkingar
Stikuð - merkt leið með stiku, staur eða stöng með reglulegu millibili
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
  • Timbur
  • Möl
  • Trjákurl
  • Gras
  • Votlendi
  • Blandað yfirborð
Hindranir
  • Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
  • Vatnsrás - skurður eða renna til að ræsa fram vatni
  • Vað - Óbrúaður lækur, eyrar eða mýrar
Hættur
  • Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
  • Vað - Óbrúaður lækur/á, eða votlendi/mýrar
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Landvarsla
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Einkunnir voru friðlýstar sem fólkvangur árið 2006 en markmið með friðlýsingu svæðisins er að vernda það votlendi og jarðmyndanir sem almenningur getur nýtt til fræðslu, útivistar og náttúruskoðunar. Göngustígar liggja víða um svæðið og er hægt að finna erfiðar brekkur í bland við léttar leiðir á láglendi. Klettaborgirnar þrjár sem rísa upp af mýrlendinu eru vel sýnilegar í fjarska en upp af Syðri-Einkunnum er útsýnisskífa, þar sem viðsýnt er um mýrar, Borgarfjörð og Borgarfjarðadali. Beygt er af þjóðveg nr.1 og inn á veg nr. 536/3. Vegur liggur að bílastæði við Einkunnir. Þar er að finna upplýsingaskilti um líffríki svæðisins ásamt fjölmörgum upphafsstöðum gönguleiða. Aðgengi vagna og hjólastóla er að finna á nokkrum leiðum en flestar leiðir eru mjóir og hækkanir eru víða. Tenging við gönguleið að Borg á Mýrum er að finna en einnig er útivistarsvæði inn í Einkunnum, þar sem grill, bekkir og borð eru að finna. Álatjörn ásamt fjöldan af göngustígum, áningarstöðum og gullfallegri skógrækt gerir Einkunnir að einum af perlum Borgarbyggðar.