Á á Skarðsströnd yfir á Vog á Fellströnd Gönguleið

Gönguleið með stórbrotið útsýni yfir Breiðarfjörð og Hvammsfjörð.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Vesturland, Dalabyggð
Upphafspunktur
N65°15.7793 W022°20.7537
Erfiðleikastig
Þrep 3 - Krefjandi leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
4 - 6 klukkustundir
Yfirborð
  • Möl
  • Gras
  • Þýft
  • Blandað yfirborð
  • Votlendi
  • Stórgrýtt
Hættur
  • Berghrun - Grjót getur fallið úr klettum, skriðum og fjallshlíðum
  • Vað - Óbrúaður lækur/á, eða votlendi/mýrar
  • Sterkir straumar - s.s á, sjór eða vötn
  • Vindstrengir - Leið þekkt fyrir kröftuga vindstrengi
  • Hálka - Hál og sleip leið
Þjónusta á leiðinni
  • Salerni
  • Sorplosun
  • Tjaldsvæði
Tjaldsvæði og þjónusta á Á á Skarðsströnd. Sveitahótel á Vogi á Fellströnd.
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Gönguleið er opin nema þegar tímabundnar lokanir eiga sér stað, t.d. vegna ófærðar yfir vetrarmánuði
Breiðafjörður hefur verið þekktur sem „matarkista Íslands" í gegnum aldirnar og eru eyjarnar í firðinum taldar óteljandi. Mikla sögu er þar að finna og er nokkuð um umferð í firðinum yfir sumartímann en fjölmörg sumarhús er þar að finna og einnig eru skoðunarferðir um eyjarnar í miklum vinsældum. Við Á á Skarðsströnd er að finna tjaldsvæði og þjónustuhús en á Vogi er að finna stórglæsilegt sveitahótel. Hægt er að hafa upphaf göngu við Á á Skarðsströnd eða við Vog á Fellsströnd. Gengið er þá út á Klofning en þaðan er stórbrotið útsýni yfir Breiðafjörð og Hvammsfjörð. Á gönguleiðinni sjálfri eru nokkur falleg vötn og skemmtileg náttúra. Við Vog á Fellsströnd er að finna sveitahótel og á Á á Skarðsströnd er að finna tjaldsvæði ásamt samkomuskemmu. Engar merkingar er að finna á gönguleið, sumsstaðar er leiðin ógreinileg og hafa ber í huga að það þarf að vaða/hoppa yfir eina á á leiðinni.