Fara í efni

Skráning á Hádegisfyrirlestur - Rekstur og efnahagur í ferðaþjónustu 2018

Rekstur og efnahagur í ferðaþjónustu 2018

Dagsetning:    Þriðjudagur 21. janúar 2020
Tími:               Hádegisfyrirlestur kl. 12-13
Staðsetning:   Íslenski ferðaklasinn, Fiskislóð 10, 101 Reykjavík
Útsending:      Streymt beint og upptaka gerð aðgengileg á netinu.

Ekkert skráningargjald. Boðið er upp á léttan hádegisverð

Fyrirlesturinn er haldinn í samvinnu við Íslenska ferðaklasann.


Í nýlegri greiningu Ferðamálastofu er farið yfir rekstur og efnahag atvinnugreina sem Hagstofa Íslands flokkar saman sem einkennandi greinar ferðaþjónustu. Fram kemur að ferðaþjónustufyrirtæki standa frammi fyrir áskorunum samfara minnkandi arðsemi, sem kallar á að leitað verði hagræðingar í rekstri.

Tölurnar taka til ársins 2018, sem Hagstofan birti stuttu fyrir jól, í samhengi við fyrri ár. Byggja þær á skattframtölum allra fyrirtækja landsins sem skilgreind eru innan viðkomandi atvinnugreina. Bæði er fjallað um þróun stærða fyrir einkennandi greinar ferðaþjónustu sem heildar og nokkrar helstu greinar ferðaþjónustu sérstaklega, eftir því sem upplýsingar frá Hagstofunni leyfa. Í fyrirlestrinum verður einnig leitast við að varpa ljósi á þróun helstu áhrifavalda á umfang og arðsemi íslenskrar ferðaþjónustu á nýliðnu ári og rætt um horfurnar um þá á nýhöfnu ferðaári.

Jóhann Viðar Ívarsson, á rannsókna- og tölfræðisviði Ferðamálastofu, vann greininguna og kynnir helstu niðurstöður á fundinum. Fundarstjóri er Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri.

Skráning:

Skrá fleiri frá sama fyrirtæki/stofnun