Fara í efni

Styrkir á sviði ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti hefur auglýst eftir umsóknum um styrki sem ætlað er að styðja við áhugahópa og faglegt starf á sviði ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar. Umsækjendur geta verið  félög, samtök, fyrirtæki eða einstaklingar, eftir því sem við á.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd þess og ráðstöfun styrkfjárins til þess að ný umsókn komi til greina.

Ákvörðun um úthlutun mun liggja fyrir eigi síðar en 15. maí n.k.

Umsækjendur skulu sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins.

Aðgangur er veittur á kennitölu umsækjanda og verður lykilorð sent viðkomandi á netfang sem hann gefur upp við nýskráningu. Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar.

Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði. Einnig er hægt að nota rafræn skilríki við innskráningu.

Nánari upplýsingar veitir Hulda Lilliendahl / netfang: hulda@anr.is

Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 25. apríl 2017.