Fara í efni

Staða Ferðamálaáætlunar 2011-2020

Sér út Eyjafjörð.
Sér út Eyjafjörð.

Ferðamálastofa hefur að beiðni Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, ráðherra ferðamála, unnið samantekt um stöðu aðgerða sem kveðið er á um í Ferðamálaáætlun 2011-2020.

Ferðamálaáætlun 2011-2020 leysti af hólmi fyrri stefnu Alþingis í ferðamálum eftir að hún var samþykkt í júní 2011. Þá höfðu orðið miklar breytingar í ferðaþjónustunni síðan fyrri stefna var unnin.

Aðgerðaáætlun í 13 liðum

Í tengslum við ferðamálaáætlunina var samþykkt aðgerðaáætlun í þrettán liðum sem felldir voru undir formerki þeirra fjögurra meginstoða sem ferðamálaáætlun byggir á. þ.e.:

• Innviðir og grunngerð (3 aðgerðir)
• Kannanir – rannsóknir-spár (3 aðgerðir)
• Vöruþróun – nýsköpun (2 aðgerðir)
• Markaðsmál (5 aðgerðir)

Í samantekt Ferðamálastofu er farið yfir hverja þessara aðgerða og hver staða þeirra er. Samantektina má nálgast hér að neðan.

Ferðamálaáætlun 2011-2020 - Staða aðgerða

Nánar:
Ferðamálaáætlun 2011-2020