Fara í efni

Samið um gerð ferðaþjónustureikninga

Samningurinn handsalaður í dag.
Samningurinn handsalaður í dag.

Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra ferðamála og Ólafur Hjálmarsson Hagstofustjóri skrifuðu í dag undir samning til þriggja ára um að Hagstofan annist gerð ferðaþjónustureikninga.

Meta efnahagsleg áhrif ferðaþjónustu

Markmiðið með samningnum er að tryggja að hægt verði að meta efnahagsleg áhrif ferðaþjónustu fyrir íslenskt efnahagslíf þannig að samanburður fáist á vægi hennar milli landa. Mikil vöntun hefur verið á tölfræði er varðar efnahagsleg áhrif ferðaþjónustunnar og samanburður við önnur lönd verið erfiður.

Tvívegis verið unnir

Ferðaþjónustureikningar (Tourism Satellite Accounts) eru unnir skv. aðferðafræði TSA og taka þeir til neyslu og framleiðslu í ferðaþjónustu, framleiðsluvirði, fjárfestingu, samneyslu og fleiri þátta sem viðkoma reikningunum. Hagstofan hefur tvívegis unnið ferðaþjónustureikninga, þ.e. árin 2010 og 2011.