Fara í efni

Kortavelta erlendra ferðamanna í júní

Kortavelta erlendra ferðamanna í júní

Enn eru slegin met í kortaveltu erlendra ferðamanna. Í júní síðastliðnum greiddu erlendir ferðamenn fjórðungi meira með kortum sínum hér á landi en í júní í fyrra. Þetta kemur fram í tölum frá Rannsóknasetri verslunarinnar.

Skipulagðar pakkaferðir í mestum vexti

Mest aukning var í ýmsum skipulögðum ferðum eins og hvalaskoðun, ferðum með leiðsögn og öðrum tegundum pakkaferða. Í þeim flokki var 64% aukning og greiddu ferðamenn með kortum sínum 2,5 milljarða í júní. Þá eru ekki meðtaldar greiðslur með reiðufé eða það sem greitt hefur verið í gegnum erlenda milligönguaðila.

Þrír milljarðar fyrir gistingu

Hæstu upphæðina greiddu erlendir ferðamenn eins og endranær fyrir gistingu. Erlend kortavelta gististaða nam rúmlega 2,9 milljörðum kr. sem er 16% hærri upphæð en í júní í fyrra.

Erlend kortavelta bílaleiga jókst um 61% í júní síðastliðnum frá júní í fyrra og nam í síðasta mánuði 1,2 milljörðum kr. Þá njóta veitingahús góðs af auknum ferðamannastraumi því erlend greiðslukortavelta í þeim geira jókst um 26% og nam 1,4 milljarði kr. í júní. Erlendir ferðamenn keyptu í verslunum með kortum sínum fyrir 2 milljarða kr. í júní sem er 14% hærri upphæð en í júní í fyrra. Þar af var kortavelta í dagvöruverslunum 429 millj. kr. sem er 33% aukning frá júní í fyrra.

Þá tóku erlendir ferðamenn út reiðufé með kortum sínum í hraðbönkum fyrir 1,7 milljarða kr. sem var 17% hærri upphæð en í júní í fyrra.