Fara í efni

Hjólum til framtíðar 2014, okkar vegir – okkar val

Hjólum til framtíðar 2014, okkar vegir – okkar val

Hjólaráðstefnan Hjólum til framtíðar 2014, okkar vegir – okkar val verður haldin í Iðnó 19. september kl. 9-16. Þrír fyrirlesarar koma erlendis frá en auk þeirra eru fjölmargir innlendir fyrirlesarar.

Erlendir gestir

Erlendu gestirnir er Klaus Bondam, formaður dönsku hjólasamtakanna og fyrrum umhverfisborgarstjóri Kaupmannahafnar, Taco Anema frá Hollandi, frumkvöðull í hönnun og framleiðslu rafmagnshjóla og Hanne Bebendorf Scheller frá dönsku krabbameinssamtökunum með erindi um heilbrigði og samgöngur, lagt upp úr viðjum vanans.

Innlendir fyrirlesarar

Aðrir gestir ráðstefnunnar eru m.a. Hanna Birna Kristjánsdóttir ráðherra samgöngumála, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Þórólfur Árnason forstjóri Samgöngustofu, Bryndís Haraldsdóttir formaður stjórnar Strætó, Eva Dís Þórðardóttir verkfræðingur hjá Eflu, Sesselja Traustadóttir framkvæmdastýra Hjólafærni, Þorstinn R. Hermannsson verkfræðingur hjá Mannviti og Pétur Gunnarsson rithöfundur.

Dagskrá og skráning

Dagskrá Hjólum til framtíðar 2014

Skráning á Hjólum til framtíðar 2014 

Ráðstefnan verður einnig send út beint á netinu. Til að tengjast vefútsendingu er farið á neðangreinda slóð.
https://attendee.gotowebinar.com/register/6676377901416667394
Skrá þarf nafn og netfang og fær þá viðkomandi senda staðfestingu í tölvupósti sem þarf að samþykkja til að fá aðgang að útsendingunni.

Hér er Fésbókarviðburður vegna ráðstefnunnar

Hjólferð og kvöldverður

Auk ráðstefnunnar verða Hjólafærni og LHM sýnileg með ýmsum hætti í evrópsku samgönguvikunni.

Fimmtudaginn 18. sept er boðið í hjólaferð frá Loft HiHostel í Bankastræti, kl. 18. Skáning hér

Og að lokinni ráðstefnu er hátíðarkvöldverður samgönguvikunnar, öllum opinn. Skráning hér

Samstarfsaðilar Hjólafærni og LHM vegna ráðstefnunnar eru Reykjavíkurborg, Umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Íslenski fjallahjólaklúbburinn, Vegagerðin, Samgöngustofa, Ferðamálastofa, Mosfellsbær, Kópavogsbær, Garðabær, Hafnarfjörður, Seltjarnarnes, Farfuglar HiHostel, Efla, Mannvit, European Cyclists‘ Federation og ÍSÍ almenningsíþróttasvið.

Nánari upplýsingar um dagskrá má sjá á vefnum www.lhm.is

Tengiliður: Sesselja Traustadóttir, s. 864 2776 eða hjolafaerni@hjolafaerni.is