Fara í efni

Farfuglaheimilin í Reykjavík í fremstu röð

Farfuglar
Ánægt starfsfólk farfuglaheimilanna með viðurkenninguna.

Farfuglaheimilið Loft í Bankastræti og Fafuglaheimilið á Vesturgötu hlutu á dögunum viðurkenningu Alþjóðasamtaka Farfuglaheimila fyrir að hafa verið valin bestu Farfuglaheimili í heimi árið 2014. Fyrir valinu standa gestir heimilanna sem bókuðu þjónustu sína á bókunarvél samtakanna sem standa fyrir valinu.

Í frétt frá Farfuglum kemur fram að alls eru um 2500 Farfuglaheimili um allan heim bókanleg á vefnum. Loft lenti í fyrsta sæti og Vesturgata fylgdi fast á eftir. Þetta er í fyrsta sinn sem tvö Farfuglaheimili frá sama landi komast á topp 3 listann yfir bestu Farfuglaheimili í heimi þó svo alltaf hafi þau verið ofarlega. Auk þess fengu heimilin viðurkenningar fyrir góðan árangur í einstökum flokkum sem gestir gátu látið skoðun sína í ljós. Þessi flokkar eru vinalegasta Farfuglaheimilið, það þægilegasta og það mest umhverfisvæna.

Á þessu ári eru 20 ár síðan íslensk Farfuglaheimili fóru að vinna eftir sérstöku gæðakerfi og er þessi glæsilegi árangur m.a. afrakstur þess starfs. En vinningsheimilin hafa þó gengið mun lengra því bæði eru þau Svansvottuð og vinna samkvæmt HIQ, gæðakerfi alþjóðasamtaka Farfugla, segir í fréttinni.