Fara í efni

88.300 ferðamenn í september


Ferðamenn í septemberUm 88 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í september síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 15.100 fleiri en í september á síðasta ári. Aukningin nemur 20,6% milli ára. Ferðamenn hafa aldrei mælst fleiri í september frá því mælingar hófust. 

 

40% frá Bandaríkjunum, Þýskalandi eða Bretlandi
Fjölmennustu þjóðerninUm 73% ferðamanna í september voru af tíu þjóðernum. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða 17,5% af heildarfjölda en næstir komu Þjóðverjar (11,2%) og Bretar (10,6%). Þar á eftir fylgdu síðan Norðmenn (6,7%), Danir (6,0%), Frakkar (5,3%), Kanadamenn (5,0%), Svíar (4,8%), Spánverjar (3,0%) og Hollendingar (2,5%). 

Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Þjóðverjum, Kanadamönnum og Bretum mest milli ára en 3.782 fleiri Bandaríkjamenn komu í september í ár en í sama mánuði í fyrra, 2.314 fleiri Þjóðverjar, 1.479 fleiri Kanadamenn og 1.297 fleiri Bretar. Þessar fjórar þjóðir báru að stórum hluta uppi aukninguna í september milli ára eða um 58,8% af heildaraukningu.

Þróun á tímabilinu 2002-2014
MarkaðssvæðiFerðamenn voru nærri fjórfalt fleiri í september í ár en þeir mældust í sama mánuði árið 2002. Ferðamönnum hefur fjölgað jafnt og þétt frá árinu 2002, eða að jafnaði um 11,7% á milli ára. Fjölgunin hefur þó verið mest afgerandi frá árinu 2010 en þá hefur hún farið yfir 20% milli ára að jafnaði frá öllum markaðssvæðum nema Norðurlöndunum sem hafa staðið í stað síðastliðin þrjú ár.

788 þúsund ferðamenn frá áramótum
Það sem af er ári hafa 788.099 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða um 148 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Um er að ræða 23,1% aukningu ferðamanna milli ára frá áramótum í samanburði við sama tímabil í fyrra. Veruleg aukning hefur verið frá flestum mörkuðum; N-Ameríkönum hefur fjölgað um 34,3%, Bretum um 33,9%, Mið- og S-Evrópubúum um 16,4%, og ferðamönnum frá öðrum mörkuðum um 28,8%. Norðurlandabúum hefur hins vegar ekki fjölgað í sama mæli eða um 7,4%.

Ferðir Íslendinga utan
Um 37 þúsund Íslendingar fóru utan í september síðastliðnum, um 4.000 fleiri en í september árið 2013. Frá áramótum hafa 298.688 Íslendingar farið utan eða 9,1% fleiri en á sama tímabili árið 2013 en þá fóru 273.894 utan.

Nánari upplýsingar
Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Ferðamenn eftir þjóðernum