Fara í efni

Vinnustofur á Spáni og Ítalíu

Íslandsstofa stendur fyrir vinnustofum í Suður Evrópu fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu dagana 24.- 27. október 2016. Á Spáni verða vinnustofurnar haldnar í borgunum Madrid og Barcelona en á Ítalíu í borgunum Mílanó og Róm.

Á vinnustofunum gefst fyrirtækjum gott tækifæri til að kynna sig og koma á viðskipta­samböndum við spænska og ítalska ferðaþjónustuaðila. Haldin verður stutt kynning um áfangastaðinn Ísland fyrir gesti vinnustofanna svo og kynning á spænska og ítalska ferðaþjónustumarkaðinum fyrir íslensku þátttakendurna.

Verð og skráning:

Verð pr. vinnustofu er að hámarki kr. 150.000 á fyrirtæki (1-2 starfsmenn). Athugið að ferðakostnaður er ekki innifalinn í verði. Þeir sem bóka sig á alla fjóra staðina hafa forgang. Takmarkaður fjöldi þátttakenda!

Gert er ráð fyrir að þátttakendur verði komnir til Madrid fyrir 24. október. Reiknað er með að hópurinn gisti og ferðist saman.

Áhugasamir eru hvattir til að fylla út skráningarblað á vef Íslandsstofu og senda á sigridur@islandsstofa.is fyrir 27. maí nk.

Þeim sem óska eftir frekari upplýsingum er bent á að hafa samband við Sigríði Ragnarsdóttur, sigridur@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.