Vestnorden 2016
Skráning er hafin á Vestnorden ferðakaupstefnuna sem verður haldin í Laugardalshöllinni í Reykjavík dagana 4.-6. október 2016.
Vestnorden er haldin af Ferðamálasamtökum Norður-Atlantshafsins (NATA), sem er samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Vestnorden haldin til skiptis af löndunum þremur, þar af annað hvert ár á Íslandi.
Á Vestnorden koma saman ferðaþjónustuaðilar á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum og kaupendur ferðaþjónustu, eða ferðaheildsalar, víðs vegar að úr heiminum. Þá koma einnig til kaupstefnunnar blaðamenn og boðsgestir. Í tengslum við Vestnorden gefst ferðaheildsölunum einnig kostur á að fara í kynnisferðir til landanna þriggja.
Íslandsstofa er framkæmdaaðili Vestnorden í ár en CPReykjavík sér um skipulagningu. Nánari upplýsingar um kaupstefnuna er að finna á vefsíðunni www.vestnorden.com og þar fer skráning fram.