Fara í efni

Top Resa ferðakaupstefnan í september - skráning

Íslandsstofa skipuleggur þátttöku á IFTM Top Resa ferðakaupstefnunni sem haldin verður í París dagana 26.- 29. september 2017. Top Resa er stærsta fagkaupstefnan á sviði ferðaþjónustu í Frakklandi og því mikilvægur vettvangur fyrir ferðaþjónustufyrirtæki sem vilja auka veg sinn á þessum markaði. Eingöngu fagfólk sækir kaupstefnuna, að jafnaði um 30.000 árlega.


Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu kaupstefnunnar.

Áhugasamir eru beðnir að fylla út skráningarblað á vef Íslandsstofu og senda á Margréti Helgu Jóhannsdóttur, margret@islandsstofa.is fyrir 10. apríl 2017.