Fara í efni

Top Resa ferðakaupstefnan

Íslandsstofa skipuleggur þátttöku á IFTM Top Resa ferðakaupstefnunni sem haldin verður í París dagana 20.- 23. september nk. Top Resa er stærsta fagkaupstefna á sviði ferðaþjónustu í Frakklandi og því mikilvægur vettvangur fyrir ferðaþjónustufyrirtæki sem vilja auka veg sinn á þessum markaði. Eingöngu fagfólk sækir kaupstefnuna, að jafnaði um 30.000 árlega.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu kaupstefnunnar.

Þátttökukostnaður veltur á fjölda fyrirtækja á þjóðarbásnum.
Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við Margréti Helgu Jóhannsdóttur,
margret@islandsstofa.is eða Sigríði Ragnarsdóttur, sigridur@islandsstofa.is