Fara í efni

Norræn vinnustofa í Mílanó

Íslandsstofa, ásamt Innovation Norway, Visit Denmark, Visit Finland og Visit Sweden standa fyrir norrænni vinnustofu í Mílanó 23. mars nk. Vinnustofan verður haldin í tengslum við svonefnda „Be Nordic“ daga í Mílanó þar sem Norðurlöndin sem ferðaáfangastaðir og norrænn lífstíll verða kynnt.

Íslandsstofa stendur fyrir þátttöku íslenskra ferðaþjónustuaðila í vinnustofunni en þar gefst fyrirtækjum gott tækifæri til að kynna sig ásamt fulltrúum hinna Norðurlandanna og koma á viðskipta¬samböndum við ítalska ferðaþjónustuaðila.

Verð og skráning:

Kostnaður við þátttöku í vinnustofunni er 1.600 € á fyrirtæki miðað við einn starfsmann en 1.900 € miðað við tvo starfsmenn.
Innifalið í þátttökugjaldi er:

• Móttökuborð
• Skráning í sérstakan vinnustofubækling
• Kynning þátttökufyrirtækis á vefsíðu vinnustofunnar og á fleiri miðlum
• Markaðsupplýsingar um ítalska ferðaheildsala sem skrá sig til þátttöku á vinnustofunni.
• Hádegisverður meðan á vinnustofu stendur.
Athugið að ferðakostnaður er ekki innifalinn í verði. Vinnustofan verður haldin 23. mars frá kl. 10:00 – 17:00.

Áhugasamir eru hvattir til að fylla út skráningarblað á vef Íslandsstofu og senda á á sigridur@islandsstofa.is fyrir 18. nóvember nk. Vinsamlegast athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Upplýsingar um Be Nordic dagana