Fara í efni

Námskeið í lagningu og viðhaldi göngustíga

Göngustígar

Námskeið í lagningu og viðhaldi göngustíga verður haldið á Hvanneyri 27. september frá kl. 9 til 17, ætlað öllum þeim sem koma að skipulagningu, uppbyggingu og viðhaldi göngustíga á Vesturlandi.

Helstu efnisþættir eru:

  • Uppbygging göngustíga
    -Ragnar Frank, lektor hjá LBHÍ
  • Göngustígagerð með verktökum eða með aðstoð sérhæfða sjálfboðaliðahópa
    -René Biasone umsjónarmaður Sjálfboðaliðar Umhverfisstofnunar
  • Kynning á stígagerð á Hólaskóla
    -Kjartan Bollason aðstoðarprófessor á Hólum
  • Kynning á mismunandi aðferðum í úttekt á ástandi göngustíga og úrbætur. René Biasone teymisstjóri náttúrusvæðateymis Umhverfisstofnunar.

Farið verður út og göngustígar við Andakíll, skoðaðir undir leiðsögn Ragnars, Kjartans og Renés.

Verð námskeiðsins er 1500 kr ( kaffi og súpa fylgir ) en nauðsynlegt er að skrá sig fyrir föstudaginn 16. september á netfangið stigavinir@gmail.com