Húsavík - Kynningarfundir um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana
Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa boða til 14 kynningarfunda um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Plans-DMP) um landið.
Á fundunum mun Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Ferðamálastofu og þau Anna Katrín Einarsdóttir og Óskar Jósefsson frá Stjórnstöð ferðamála kynna verkþætti og tímalínu verkefnisins auk þess sem breski ráðgjafinn Tom Buncle mun fara ítarlega yfir eðli, markmið og tilgang slíkra verkefna og hvernig þau geta nýst inn í framtíðarskipulag og þróun svæða. Hagaðilar DMP verkefna eru breiður hópur s.s. sveitarfélög, markaðsstofur, atvinnuþróunarfélög, ferðaþjónar, ferðaklasar, upplýsingamiðstöðvar, aðrir þjónustuaðilar, öryggis- og viðbragðsaðilar, íbúar o.fl.
Nánari upplýsingar í PDF-skjali
Fundirnir verða sem hér segir:
Staður | Dagur | Tími |
Húsavík, Salka | Mánudagur 10/10 | 09:30 |
Blönduós, B&S/Eyvindarstofa | Mánudagur 10/10 | 16:00 |
Akureyri, Hótel KEA | Þriðjudagur 11/10 | 10:00 |
Selfoss, Fjölheimar | Miðvikudagur 12/10 | 09:30 |
Vík í Mýrdal, Icelandair Hótel Vík | Miðvikudagur 12/10 | 15:00 |
Reykjanes, Duus hús | Fimmtudagur 13/10 | 09:30 |
Hlekkur á skráningarblað er hér að neðan. Vinsamlegast skráið þátttöku í það minnsta 3 virkum dögum fyrir fund á ykkar svæði. Hver fundur er áætlaður 2-3 tímar. Skráðir þátttakendur fá sendar ítarlegri upplýsingar um dagskrá hvers fundar og nánari fundarstað.
Skráning á kynningarfundi um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana