|
Flokkun
gististaða með stjörnugjöf
Allir gististaðir á Íslandi eiga þess kost að taka þátt í flokkun gististaða
með stjörnugjöf þar sem gististaðir eru flokkaðir frá einni og upp í fimm
stjörnur. Hótelflokkunin er opinbert gæðaeftirlit í umsjá Ferðamálastofu og
eru þeir staðir sem eru flokkaðir heimsóttir einu sinni á ári af hlutlausum
aðila.
Við flokkunina er stuðst við flokkunarkerfi samtaka veitinga-og gististaða í
Danmörku, HORESTA, samskonar kerfi er einnig notað í Svíþjóð, Grænlandi,
Færeyjum og Eystrasaltsríkjunum.
Flokkunin sem slík er ekki altækur dómur um gæði viðkomandi gististaðar
heldur felur hún í sér úttekt á 100 mismunandi atriðum þar sem aðallega er
tekið mið af hlutlægum þáttum eins og t.d. aðbúnaði eða þeirri þjónustu sem
er til staðar.
Hér að neðan má sjá dæmi um nokkur atriði innan hvers stjörnuflokks en
nánari upplýsingar um flokkunarviðmiðin er að finna á:
http://www.ferdamalastofa.is/upload/files/flokkungististadavidmid_mai04.pdf
Ein stjarna:
Öll herbergi eru með handlaug og það er a.m.k. eitt salerni fyrir hver
10 herbergi. Aðgangur er að almenningssíma, morgunmatur er í boði og
gestir geta komist inn og út allan sólarhringinn. |
|
Tvær stjörnur:
Til viðbótar við einnar stjörnu gististað er símaklefi eða
almenningssími þar sem tryggt er að gestir geti talað í næði. Einnig bar
eða afgreiðsla þar sem hægt er að kaupa léttar veitingar, ásamt
veitingasal fyrir morgunmat og eftir aðstæðum fyrir aðrar máltíðir.
Herbergi geta verið útbúin með baðherbergi en slíkt er þó ekki skilyrði.
|
 |
Þrjár stjörnur:
Til viðbótar eru öll herbergi með baði, sjónvarpi, útvarpi og
skrifborði. Afgreiðsla er opin að deginum til og hægt er að kaupa
smávöru, lestrarefni o.fl. Hægt er að greiða fyrir vörur og þjónustu með
greiðslukortum. Lyfta er í húsinu ef hæðir með herbergjum eru þrjár eða
fleiri auk mótttökuhæðar.
|
 |
Fjórar stjörnur:
Til viðbótar er amk einn þægilegur stóll eða sæti á sófa í öllum
herbergjum, sjónvarp með fjarstýringu, gervihnattarásum og kvikmynda eða
vídeórás. Herbergisþjónusta er allan sólarhringinn eða minibar, "a la
carte" veitingastaður og möguleiki á að fá morgunmat sendan í herbergi.
Fatahreinsun er einnig í boði. Lyfta er í húsinu ef hæðir með herbergjum
eru tvær eða fleiri auk móttökuhæðar.
|
 |
Fimm stjörnur:
Til viðbótar er gististaðurinn með lúxusinnréttingum. Öryggishólf eru í
herbergjum. Lyfta er í húsinu ef það er á fleiri en einni hæð. Hægt er
að fá sendan mat á herbergi fram til kl. 23. Möguleiki er á
ritaraþjónustu. Til staðar er innisundlaug eða líkamsræktaraðstaða þar
sem starfar fagfólk. Verslun með gjafavörur og minjagripi er á
gististaðnum og boðið er upp á flutning á farangri upp í herbergi |
 |
|