
Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8-16 - Beinir símar
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5511
Skiptiborð opið 8-16 - Beinir símar
Netfang: upplysingar[hjá]icetourist.is
| 21.7.2010 |
| Landeyjahöfn skapar ný sóknarfæri fyrir ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum
|
Siglingatíminn á milli lands og Eyja styttist nú úr tæplega þremur klukkustundum í rúmlega 30 mínútur og sigling og akstur á milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur styttist úr fjórum klukkustundum í tvær og hálfa. Landeyjahöfn var vígð formlega í gær og sigldi Herjólfur þá jómfrúarferð sína frá Vestmannaeyjum. Kristján L. Möller samgönguráðherra vígði nýju höfnina og sagði við það tækifæri að þörf væri á nýjum Herjólfi. Hann hefur skipað stýrihóp til að skoða hvernig best verður staðið að því. Meðfylgjandi myndir, sem fengnar eru af vef samgönguráðuneytisins og Siglingamálastofnunar, sýna Herjólf sigla inn í nýju höfnina og síðan hvernig hið mikla mannvirki lítur út. |
| < Til baka | Senda síðu | | Prenta síðu |