
Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8-16 - Beinir símar
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5511
Skiptiborð opið 8-16 - Beinir símar
Netfang: upplysingar[hjá]icetourist.is
| 20.7.2010 |
| Hálendisskálar gerðir aðgengilegir öllum
|
Forsaga málsins er að í fyrrasumar fór Jón Gunnar, sem bundinn er við hjólastól, ásamt félögum sínum á fjórhjóli suður yfir hálendið og kannaði þá m.a. aðgengi að fjallaskálum á leiðinni. Komust þeir að því að því er víða ábótavant. Kviknaði þá sú hugmynd þeirra að ráðast í úrbætur og veitti Ferðamálastofa 2 milljón króna styrk til verkefnisins. Ákveðið var að byrja á skála FÍ í Nýjadal og réðist valið að sögn Jóns Gunnars af staðsetningu hans sem og stærð en skálinn er staðsettur mjög miðsvæðis á hálendinu og er stærsti hálendisskáli landsins með svefnpláss fyrir vel á annað hundrað manns auk eldunnar og snyrtiaðstöðu. Farið var í að laga aðgengi að eldri svefnskálanum en þar er einnig eldunaraðstaða. Einnig var salernis- og hreinlætisaðstaða gerð aðgengileg, ásamt sólpalli á vesturhlið svefnskálans. Breytingarnar fólust í smíði skábrauta/rampa með réttum halla upp að dyrum skálans og upp á sólpall og að salernis og hreinlætisaðstöðu. Einnig þurfti að breikka dyr á sturtunni sem og fella niður og breyta þröskuldi inn í sturtuaðstöðu. Dæmi um úrbætur á sjá á meðfylgjandi mynd.
|
| < Til baka | Senda síðu | | Prenta síðu |