
Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8-16 - Beinir símar
Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5511
Skiptiborð opið 8-16 - Beinir símar
Netfang: upplysingar[hjá]icetourist.is
| 3.2.2010 |
| Gistinætur á hótelum 1,3 milljónir á liðnu ári
|
Hagstofan hefur birt tölur um fjölda gistinátta á hótelum árið 2009. Samkvæmt þeim voru gistinætur á árinu 1.333.200 talsins og fækkar lítillega frá árinu 2008. Þá voru gistinætur 1.339.900 þannig að fækkunin nemur 1%. Á flestum landsvæðum fækkar gistinóttum á milli ára eða standa í stað. Hlutfallslega fækkar gistinóttum mest á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða en fjölgar mest á Norðurlandi og Suðurlandi. Gistinóttum Íslendinga fækkar um 10% frá árinu 2008 á meðan gistinóttum erlendra ríkisborgara fjölgar um rúm 2%. Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. |
| < Til baka | Senda síðu | | Prenta síðu |