Ferðamálastofa

Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8-16 - Beinir símar

Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5511
Skiptiborð opið 8-16 - Beinir símar

Netfang: upplysingar[hjá]icetourist.is

English
Iðnaðarráðuneyti
Skrá netfanmg  Fmst




Ekki skráð/ur?
Nýskráning

Tölfræðibæklingur Ferðamálastofu
-Nýjasta útgáfa febrúar 2010

Tölfræðibæklingur Ferðamálastofu er gefinn út bæði á íslensku og ensku. Nefnist hann "Ferðaþjónusta á Íslandi í tölum" (Tourism in Iceland in figures). Ferðamálastofa stefnir á að auka miðlun tölfræðilegra upplýsinga er varða atvinnugreinina og verður bæklingurinn endurnýjaður u.þ.b. ársfjórðungslega.

Tölfræðibæklingurinn er gefinn út á rafrænu formi sem PDF-skjal. Byrjað var á íslenskri útgáfu en innan skamms mun ensk útgáfa einnig bætast við. Verður enska útgáfan aðgengileg á ferðavefnum visiticeland.com og hún verður einnig send helstu samstarfsaðilum erlendis.

Í bæklingnum eru teknar saman og settar fram í myndrænu formi ýmsar tölulegar staðreyndir um íslenska ferðaþjónustu, fjölda erlendra ferðamanna og ferðahegðun þeirra. Helstu heimildir eru kannanir Ferðamálastofu meðal erlendra ferðamanna, talning ferðamanna í Leifsstöð og tölur frá Seðlabankanum og Hagstofunni. Meðal þess sem sjá má í bæklingnum er:

• Hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu
• Ársverk í ferðaþjónustu
• Útflutningstekjur helstu atvinnugreina
• Tekjur af erlendum ferðamönnum
• Komur erlendra ferðamanna
• Ferðamenn eftir þjóðerni
• Árstíðabundnar breytingar komufarþega frá helstu markaðssvæðum
• Gistirými eftir landshlutum
• Nýting á gistirými
• Greining á ferðamönnum eftir kyni, aldri, starfi og tekjum
• Ákvörðunarferli vegna íslandsferðir og ástæður ferðar
• Hvaðan ferðamennirnir fá upplýsingar um landið
• Hvaða staði/svæði fólk heimsækir
• Hvort Íslandsferðin hafi staðið undir væntingum

Nýjustu útgáfur:

Febrúar 2010:

Október 2009:

  Senda síðu  | Prenta síðu