Ferðamálastofa

Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8-16 - Beinir símar

Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5511
Skiptiborð opið 8-16 - Beinir símar

Netfang: upplysingar[hjá]icetourist.is

English
Iðnaðarráðuneyti
Skrá netfanmg  Fmst




Ekki skráð/ur?
Nýskráning
15.9.2010
Vestnorden 2010

Vestnorden 2010 verður haldin á Akureyri 15.-17. september

Vestnorden er árleg ferðakaupstefna sem Íslendingar, Grænlendingar og Færeyingar hafa staðið að í rúma tvo áratugi. Kaupstefnurnar eru haldnar til skiptis í löndunum þremur. Vestnorden 2010 fer fram dagana 15.-17. september í nýja ráðstefnu- og menningarhúsinu Hofi á Akureyri og þá í 25. sinn. Sýnendur á kaupsstefnunni koma frá vestnorrænu löndunum þremur og á Vestnorden hitta þeir ferðaheildsala hvaðanæva að úr heiminum og eiga með þeim stutta fundi sem búið er að tímasetja áður en kaupstefnan hefst. Þarna er um að ræða fyrirtæki sem eru að selja, eða hafa hug á að selja, ferðir til vestnorrænu landanna og því felast mikilvæg viðskiptatækifæri í þátttöku..

Ferðamálastofa hefur umsjón með Vestnorden á Íslandi en framkvæmd að þessu sinni er í höndum Congress Reykjavík og handhægast að beina fyrirspurnum um framkæmd kaupstefnunnar þangað. www.congress.is. Á vef Vestnorden eru allar nánari upplýsingar og þar er einnig hægt að skrá sig til þátttöku. www.vestnorden.com


Fyrri Vestnorden kaupstefnur:

< Til baka   Senda síðu  | Prenta síðu