
Menntamálaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga, í samstarfi við menningarráð landsbyggðarinnar boðar til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi dagana 11. og 12. maí næstkomandi. Fjallað verður um reynsluna af menningarsamningunum og spurt hver árangur hafi orðið og hvert beri að stefna. Hvernig getum við nýtt okkur menningu og menningartengda ferðaþjónustu til nýrrar sóknar í nýsköpun og nýtingu menningararfs okkar?
Menningarráð landsbyggðarinnar kynna starfsemi sína og bjóða upp á fjölbreytt sýnishorn skapandi menningar. Fróðleg erindi og spennandi viðburðir.
Dagskrá:
Mánudagur 11. maí:
| 12:00 |
Trommusveitin í Stykkishólmi býður gesti velkomna |
|
Ávarp ráðherra |
|
Landshlutapóstur frá Menningarráði Vesturlands og Vestfjarða |
| 12:40 |
Dögg Mósesdóttir: Framtíðarfjárfestingin menning |
| 13:00 |
Leikatriði frá Ungmennafélaginu Íslendingi í boði Menningarráðs Vesturlands |
|
- Stutt hlé – |
| 13:30 |
Elísabet Indra Ragnarsdóttir: „Við verðum að læra að sjá meira, heyra meira, skynja meira ...“ |
| 13:50 |
Hjálmar H. Ragnars: Skapandi kraftur |
| 14:10 |
Jón Hrólfur Sigurjónsson: „Hér er hægt að fá brjálaðar hugmyndir og láta þær gerast!“ |
| 14:30 |
Spurningar og svör um menningaruppeldi og listfræðslu |
|
- Stutt hlé – |
| 15:00 |
Tónlistarperlur: Alexandra Chernyshova sópran, Þórhallur Barðason bariton og Tom R. Higgerson píanóleikari flytja. Tónlistaratriði í boði Menningarráðs Norðurlands vestra |
| 15:15 |
Landshlutapóstur frá Menningarráði Norðurlands vestra |
| 15:30 |
Þór Sigfússon: Um þýðingu lista og menningar í íslensku athafnalífi |
|
- Stutt hlé – |
| 16:10 |
Menningarlandið 2009: Höfum við gengið til góðs: Guðrún Helgadóttir og Signý Ormarsdóttir flytja hugleiðingu um reynslu og árangur af menningarsamningum ríkis og sveitarstjórna. Að erindum þeirra loknum taka þær þátt í pallborði ásamt Svanfríði Jónasdóttur bæjarstjóra á Dalvík og fulltrúum frá iðnaðar- og menntamála-ráðuneytum. |
| 17:15 |
Sameiginleg upplifunarferð með ævintýrasiglingu. Sturla Böðvarsson segir frá sögu og skipulagi gamla miðbæjarins í Stykkishólmi og gengið verður fylktu liði gegnum gamla bæinn, niður á höfn og um borð í bát sem siglir með gesti um Breiðafjörð. Boðið verður upp á ferskt sjávarfang um borð. |
| 19:45 |
Fordrykkur í boði Stykkishólmskaupsbæjar í Vatnasafninu. |
| 21:00 |
Kvöldverður með næringu fyrir líkama og sál. Þjóðlagasveitin frá Akranesi, Stefán Benedikt Vilhelmsson leikari, Þórunn Gréta Sigurðardóttir píanóleikari, Ólafur Ágútsson og Kómedíuleikhúsið frá Ísafirði verða meðal skemmtiatriða. Veislustjóri er Gunnar Svanlaugsson. |
Þriðjudagur 12. maí:
| 09:30 |
Svanhildur Konráðsdóttir: Menning - mikilvægur drifkraftur í ferðaþjónustu |
| 09:50 |
Landshlutapóstur frá Menningarráði Eyþings |
| 10:05 |
Stuttmyndafestivalið Stulli – verðlaunamynd og bjartasta vonin 2008 í boði Menningarráðs Eyþings |
| 10:15 |
Dansgjörningur í boði Menningarráðs Eyþings: Anna Richardsdóttir |
| 10:30 |
Landshlutapóstur frá Menningarráði Suðurlands |
| 10:45 |
Þjóðlagasveitin Korka í boði Menningarráðs Suðurlands |
|
- Stutt hlé – |
| 11:20 |
Sigríður Sigurjónsdóttir: Stefnumót Bænda og hönnuða |
| 11:40 |
Sólveig Ólafsdóttir: Meyjarhumar og hákarl |
| 12:00 |
Matarhlé |
| 13:00 |
Viðar Hreinsson: Menningararfur og sjálfsmynd Íslendinga |
| 13:20 |
Hjálmar Sveinsson: Skipulag er menning |
| 13:40 |
Umræður |
|
- Stutt hlé – |
| 14:20 |
Landshlutapóstur frá Menningarráði Austurlands |
| 14:35 |
Brynhildur Guðjónsdóttir: Í fáum orðum |
| 15:00 |
Jón Jónsson: Rótað í framtíðinni |
| 15:20 |
Ávarp ráðherra |
| 15:30 |
Lúðrasveit Stykkishólms og Akraness kveður gesti |
|
(Með fyrirvara um breytingar) |
Nokkrar hagnýtar upplýsingar:
Ráðstefnan verður haldin á Hótel Stykkishólmi 11.-12. maí 2009.
Ráðstefnugjald er 9000 kr. Innifalið er hádegisverður, kvöldverður (án drykkja), kaffiveitingar og kynnisferð.
Þátttakendur greiða sjálfir fyrir gistingu og panta hana sérstaklega. Hótel Stykkishólmur býður upp á sérstakt tilboðsverð fyrir ráðstefnugesti. Gisting í eina nótt fyrir manninn kostar 5000 kr. í tveggja manna herbergi og 6000 kr. í eins manns herbergi. Bókanir eru í gegnum netfangið hotelstykkisholmur@hringhotels.is
Skráning Skráning á ráðstefnuna fer fram hér á vefnum. Skráningu er lokið
|