Ferðamálastofa

Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8-16 - Beinir símar

Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5511
Skiptiborð opið 8-16 - Beinir símar

Netfang: upplysingar[hjá]icetourist.is

English
Iðnaðarráðuneyti
Skrá netfanmg  Fmst




Ekki skráð/ur?
Nýskráning

Styrkir til úrbóta á ferðamannastöðum
-Skilafrestur vegna umsókna fyrir árið 2010 er útrunninn

Íslensk náttúra er eitt helsta aðdráttarafl Íslands í hugum ferðamanna. Stefna íslenskra stjórnvalda er að ferðaþjónustan í landinu starfi sem mest í anda sjálfbærni. Liður í því er markviss uppbygging og fyrirbyggjandi aðgerðir til verndunar íslenskrar náttúru.

Sem viðleitni til að bæta þjónustu við ferðamenn, vernda náttúruna og draga úr álagi á umhverfið veitir Ferðamálastofa styrki til úrbóta í umhverfismálum á hverju ári. Styrkir skiptast í tvo meginflokka:

1.  Styrkir til smærri verkefna er varða úrbætur á ferðamannastöðum:
Veittir verða styrkir til smærri verkefna til úrbóta í umhverfismálum. Hámarksupphæð hvers styrks verður 500 þúsund krónur og er hann ætlaður fyrir efniskostnaði.

2.   Styrkir til uppbyggingar á fjölsóttum ferðamannastöðum sem og nýjum svæðum:
Styrkupphæð getur að hámarki orðið 50% af kostnaðaráætlun. Sérstök áhersla verður lögð á að styrkja verkefni sem hafa sjálfbærni og langtímamarkmið í umhverfismálum að leiðarljósi.

Allar umsóknir skulu innihalda:
a) Kostnaðar- og framkvæmdaáætlun
b) Afrit af skipulagi svæðis og/eða skriflegt samþykki viðkomandi yfirvalda vegna verkefnisins
c) Teikningar af mannvirkjum, þegar það á við, og/eða skriflegt samþykki byggingarfulltrúa
d) Skriflegt samþykki allra landeigenda og húsráðenda

Hverjir geta sótt um?
Öllum sem hagsmuna eiga að gæta er frjálst að sækja um styrk að uppfylltum þeim skilyrðum sem sett eru fram í auglýsingu um styrkina. Við úthlutun verður m.a. tekið mið af ástandi og álagi á svæði, og mikilvægi aðgerðanna vegna náttúruverndar. Nauðsynlegt er að framkvæmdir stangist ekki á við gildandi skipulag og séu unnar í samráði við viðkomandi sveitarstjórnir, landeigendur, náttúruverndarnefndir og aðra aðila sem með málið hafa að gera s.s. Umhverfisstofnun.

Hvar ber að sækja um:
Umsóknir berist á rafrænu umsóknareyðubaði sem er aðgengilegt hér á vefnum á meðan umsóknarfrestur er í gildi. Einnig er hægt að skila inn skriflegum umsóknum á eyðublöðum sem fást á skrifstofu Ferðamálastofu, Strandgötu 29, 600 Akureyri.

  • Umsókn um styrk til úrbóta á ferðamannastöðum 2010.  (Skilafrestur er útrunninn). 

Nánari upplýsingar veitir Sveinn Rúnar Traustason umhverfisstjóri Ferðamálastofu í síma 535-5510 eða á sveinn@icetourist.is

 

  Senda síðu  | Prenta síðu