|
Þolmörk ferðamannastaða rannsökuð Ferðamálaráð Íslands, Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands vinna nú að rannsókn á þolmörkum níu ferðamannastaða á Íslandi. Forverkefni var unnið á Snæfellsnesi sumarið 1999 og nú eru rannsóknaraðilar að búa sig undir fyrsta áfanga meginverkefnis sumarið 2000. Þolmörk eru sá fjöldi ferðamanna sem svæði þolir áður en grípa verður til takmarkana eða aðgerða til að forða hnignun ferðamannastaðar. Ferðamannastað hnignar þegar ferðamönnum þangað fækkar eða staðurinn fer að láta á sjá að einhverju leyti. Rannsóknin tekur til fjögurra þátta ferðamennsku; grunngerðar svæðis, framboðs og afkastagetu fyrirtækja, reynslu ferðamanna og upplifunar þeirra, viðhorfa heimamanna til ferða mannna og ferðamennsku og áhrifa ferðamanna á náttúrulegt umhverfi.
Það eru Anna Dóra Sæþórsdóttir, Arnar Már Ólafsson, Guðrún Gísladóttir og Björn Sigurjónsson sem skipta með sér verkum og leiða rannsóknina. Sumarið 2000 verða þrír staðir rannsakaðir; Skaftafell, Lónsöræfi og Landmannalaugar. Á næstu vikum verður haft samband við ferðaþjónustuaðila og ferðamálafulltrúa viðkomandi svæða og leitað samstarfs við þá um upplýsingaöflun fyrir verkefnið. Verkefnið hefur vakið nokkra athygli erlendis og bíða menn spenntir eftir niðurstöðum sumarsins sem vænta má í nóvember n.k.
Samskiptavefur Samskiptavefurinn á Internetinu hefur tekið miklum breytingum undanfarið og er nú meira nýttur sem "fréttabréf" ráðsins fyrir greinina hér á landi. Þar er komið á framfæri því sem efst er á baugi hverju sinni hjá Ferðamálaráði. Þar er m.a. markaðsáætlun og öll markaðsverkefni svo aðilar geti fylgst með áherslum Markaðsráðsins og hvernig verkefnum miðar. Á vefnum eru fundargerðir, pistlar starfsmanna auk fjölda upplýsinga um starfsemi ráðsins hverju sinni. Íslenskir ferðaþjónustuaðilar eru hvattir til að fylgjast með vefnum.
Skrifstofur Ferðamálaráðs Íslands
Reykjavík: Ferðamálaráð Íslands, Lækjargötu 3, 101 Reykjavík Sími: 535-5500, fax: 535-5501 info@icetourist.is www.icetourist.is
Akureyri: Ferðamálaráð Íslands Strandgötu 29, 600 Akureyri Sími: 461-2915 Fax: 461-2729 upplysingar@icetourist.is www.icetourist.is
Bandaríkin: Icelandic Tourist Board 655 Third Avenue, New York, N.Y. 10017 Sími: (212) 885-9747, fax: (212) 885-9710 usa@icetourist.is www.goiceland.org
Frakkland: Le Conceil Islandais de Tourisme 8, Avenur Kléber 75116 Paris, France france@icetourist.is
Þýskaland: Isländisches Fremdenverkehrsamt City Center, Frankfurter Str. 181, D-63263 Neu-Isenburg 1 Sími: (6102) 254484, fax: (6102) 254570 germany@icetourist.is www.skandinavien.de/Island.html
Í takt við breytta tíma Á undanförnum mánuðum hefur orðið gífurleg breyting á öllu ytra umhverfi og einnig á innra starfi Ferðamálaráðs Íslands. Þær taka eðlilega mið af þeirri þróun í greininni sem krefst stöðugt nýrra vinnubragða til að gera okkur enn samkeppnishæfari við að byggja hér upp gjaldeyris- og atvinnuskapandi atvinnugrein til frambúðar.
Í þessu fréttabréfi er stiklað á stóru í verkefnum ráðsins. Kemur þar greinilega í ljós hve umfang þeirra fer vaxandi og einnig hve fjölbreytt þau eru orðin. Þá er ekki síður athyglisvert hvernig allt kynningarstarf okkar og einnig kynningarefni tekur sífelldum breytingum í samræmi við þær kannanir sem nú er stuðst við bæði innlendar og erlendar. Þær sýna okkur hve nauðsynlegt er að bregðast við t.d. auknum kröfum um rafrænar upplýsingar og stöðugt styttri svartíma. Ef við bregðumst ekki við breytingunum og um leið kröfum markaðarins og greinarinnar með breyttum áherslum og aðferðum þá er hætta á að samkeppnisstaða okkar versni fljótt. Breytingar í upplýsingatækni gera okkur nú kleift að vinna að ákveðnum þáttum upplýsingamála nær hvar sem er og þetta höfum við notfært okkur.
Á það skal minnt hér að Ferðamálaráð sinnir eingöngu hinni almennu hlutlausu landkynningu og markaðssetningu. Til viðbótar þeirri vinnu kemur eðlilega öll kynning einstakra fyrirtækja, sveitarfélaga og landshluta. Á sama hátt vinnur ráðið almennar grunnrannsóknir og kannanir sem nýtast síðan fyrirtækjum og öðrum við þeirra vinnu í uppbyggingunni. Þetta á við í öllu starfi ráðsins að það vinnur hlutlaust fyrir heildina að grunnþáttum í þeim verkefnum sem því eru falin.
Ef litið er til nokkurra breytinga í verkefnum undanfarinna mánuða skal hér stiklað á stóru. Á síðasta ári var gerð breyting á lögbundnum verkefnum ráðsins og skal ráðið nú auk fyrri verkefna sinna rannsóknum og könnunum í ferðaþjónustu. Gerðir voru samningar stjórnvalda og annarra hagsmunaaðila um stóraukið starf í markaðsmálum. Gerður var samningur ríkis og annarra hagsmunaaðila sem tryggir 420 milljónir til verkefna Markaðsráðs á næstu fjórum árum. Þá var gerður hliðstæður samningur sem tryggir 350 milljónir til kynningarverkefna í N-Ameríku undir heitinu "Iceland Naturally" á næstu fimm árum. Bæði þessi verkefni eru vistuð hjá Ferðamálaráði og eru til viðbótar við annað lögbundið markaðs- og kynningarstarf okkar.
Þá var ráðinu falið á síðasta ári að annast framkvæmd gæðaflokkunar gististaða hér á landi. Við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2000 voru fjárveitingar til lögbundinna verkefna Ferðamálaráðs að öðru leyti auknar verulega og þá sérstaklega til umhverfismála svo sem til úrbóta á fjölsóttum ferðamannastöðum. Fjárhagsáætlun Ferðamálaráðs fyrir árið 2000 gerir ráð fyrir rúmlega 220 milljóna króna veltu sem er veruleg aukning. Öll þessi auknu verkefni sem okkur hafa verið falin kalla eðlilega á breyttar áherslur í starfi okkar og einnig hafa stóraukin umsvif í ferðaþjónustu á Íslandi kallað á aukna starfsemi í öllum þáttum hennar sem snúa að Ferðamálaráði.
Nú eru 17 starfsmenn hjá Ferðamálaráði á fimm skrifstofum og hefur þeim fjölgað um þrjá frá fyrra ári, en gert er ráð fyrir að þeir verði 19 í lok þessa árs.Tíu starfsmenn sinna markaðs- og kynningarstarfinu. Þar er um að ræða, auk þess sem Ferðamálaráði er falið með lögum, verkefni fyrir Markaðsráðið, Iceland Naturally og Ráðstefnuskrifstofu Íslands auk umfangsmikilla verkefna í upplýsingaþættinum. Tveir starfsmenn vinna að rannsóknum og könnunum, sem í reynd er að verulegu leyti vinna tengd grunnvinnu í markaðsmálum.
Fimm starfsmenn sinna síðan öðrum verkefnum ráðsins; umhverfismálum, flokkun gististaða, ráðgjöf og fleiru svo sem almennum skrifstofustörfum þ.m.t. fjármálum, afgreiðslu, fyrirspurnum og ýmsum stjórnsýsluverkefnum. Eins og kemur fram í þessu fréttabréfi hefur starfsemin ekki aðeins verið að aukast heldur hefur einnig verið lögð á það áhersla að breytingarnar séu gerðar í samræmi við óskir og þarfir atvinnugreinarinnar. Vinnubrögð ráðsins verða að haldast í hendur við áherslur fyrirtækjanna, breyttar kröfur markaðarins hvað varðar kynningar- og dreifileiðir og síðast en ekki síst verður að gæta þess á hverjum tíma að fylgjast með alþjóðlegri þróun og aðlaga starfið að alþjóðlegum breytingum í greininni.
Ferðaþjónusta er alþjóðleg atvinnugrein og þeir sem þar starfa, starfa á markaðstorgi heimsins í gífurlegri alþjóðlegri samkeppni. Það er okkur starfsfólkinu mikilvægt að gleyma þessu aldrei hvort sem við vinnum á skrifstofum ráðsins í Reykjavík, Akureyri, New York, Frankfurt eða París.
Magnús Oddsson
Umhverfisverkefni Á árinu 1999 vann Ferðamálaráð að umhverfismálum sem endranær. Stærstu einstöku verkefnin voru uppsetning á salernishúsum við Leirhnjúk og bygging húss í Landmannalaugum í samstarfi við Ferðafélag Íslands. Það hús leysir þann vanda sem þar var í hreinlætis- og salernismálum. Á síðasta ári var einnig unnið að endurbótum á Laugaveginum, hönnun úrbóta við Gullfoss og við Surtshelli auk ýmissa smærri verkefna.
Sumarið 2000 er stefnt að úrbótum á fjölmörgum stöðum enda hefur fjármagn til framkvæmda verið aukið verulega og aldrei verið jafnmikið og nú eða alls tæpar 36 milljónir króna. Stærstu verkefni sumarsins eru bygging salernishúsa við Hraunfossa í Borgarfirði og lagfæring á göngustígum þar, hönnun og úrbætur við Skógafoss undir Eyjafjöllum og áningarstaður við Hengifoss í Fljótsdal. Þar að auki verður unnið að úrbótum á eftirtöldum stöðum:
- Í Krýsuvík verða lagfæringar á stígum og pöllum eftir sprengingu sem þar varð síðasta haust.
- Í Surtshelli verða framkvæmdir í samræmi við skipulag sem unnið var á síðasta ári.
- Við Dynjanda verður unnið að lokafrágangi í stígagerð og merkingum.
- Hindisvík, Hvítserkur og Borgarvirki. Þar verða úrbætur í stígum, merkingum og bílastæðum.
- Við Víðimýrarkirkju verður uppsetning á salernishúsum í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands og Héraðsnefnd Skagafjarðar.
- Jökulsárgljúfur: Uppsetning á salernishúsi í botni Ásbyrgis í samvinnu við Náttúruvernd ríkisins.
- Í Skaftafelli verður unnið að úrbótum í stígamálum í samvinnu við Náttúruvernd ríkisins
- Við Gullfoss verða framkvæmdir í samræmi við skipulag sem unnið var á síðasta ári.
Árið 2000 renna styrkir til Suðurlands, Reykjaness, Vesturlands og Vestfjarða. Sótt var um styrki til 60 verkefna og verða 20 þeirra styrkt skv. ákvörðun Ferðamálaráðs. Styrkveitingar eru á bilinu 50 til 500 þúsund. Alls er varið til þessara styrkja til úrbóta á ferðamannastöðum 3 millj. króna.
Gagnabanki ferðaþjónustunnar Ferðamálaráð Íslands og Háskólinn á Akureyri hafa gert með sér samning um uppsetningu og rekstur gagnabanka fyrir ferðaþjónustu. Um er að ræða gagnabanka sem mun vista talnagögn, skýrslur, rannsóknir og ritgerðir um ferðamál og ferðaþjónustu. Vandinn sem gagnabankinn á að leysa er sá að gögn um ferðaþjónustu og ferðamál eru dreifð og misaðgengileg. Með gagnabanka sem er aðgengilegur á veraldarvefnum er ætlunin að notendur hafi góða yfirsýn yfir þau gögn sem til eru um ferðamál og aðgengi að upplýsingum sé auðvelt. Því verður lögð áhersla á notendavænt viðmót, hraða og skýrleika leiðbeininga. Notendur upplýsinganna eru nemendur, fræðimenn, ferðaþjónustuaðilar, opinberar stofnanir og almenningur sem notar gögn og upplýsingar um ferðamál til fræðistarfa, skipulags, kennslu og hverra þeirra verkefna er krefjast heimilda og upplýsinga um ferðaþjónustu og ferðamál. Gagnagrunnurinn verður vistaður á vefþjóni Háskólans á Akureyri og verður uppfærður þar. Ráðinn verður starfskraftur til að uppfæra gögn í gagnagrunninn og sinnaverkefninu af hálfu eigenda. Starfssvið þess starfskrafts er að slá inn gögn, svara fyrirspurnum og sinna verkefninu þannig að ekki verði tafir eða misfellur við afgreiðslu fyrirspurna og miðlun gagna. Stefnt er að því að grunnurinn verði kominn í loftið haustið 2000.
Af verkefnum Ráðstefnuskrifstofu Íslands Nýlokið er útgáfu á nýjum bæklingi skrifstofunnar, nýtt myndband er í burðarliðnum og verið er að hefja vinnslu á nýrri heimasíðu. Ráðstefnuskrifstofan ásamt aðildarfélögum sínum tekur þátt í fagsýningum erlendis; Confex í London (feb/mar) og EIBTM í Genf (maí). Báðar þessar sýningar eru sérhæfðar sýningar fyrir ráðstefnu- og hvataferðamarkað. Í lok mars er von á hópi fulltrúa tímarits um hvataferðir frá Þýskalandi þar sem RSI og FI ásamt aðildarfélögum kynna þá aðstöðu til hvataferða sem Ísland hefur upp á að bjóða.
Flokkun gististaða á Íslandi Fullvíst má telja að flokkun gististaða sem Ferðamálaráð Íslands hefur tekið að sér að hafa umsjón með verði gistiþjónustu á Íslandi til mikils framdráttar þegar fram í sækir. Um heim allan eru gestir vanir að hafa störnugjöf til viðmiðunar þegar þeir velja sér gististaði því þó svo að þau atriði sem tekin eru inn í slíka stjörnugjöf geti verið mismunandi á milli landa þá hefur hún alþjóðlega merkingu og hjálpar fólki að velja sér gistingu í þeim gæðaflokki sem það óskar. Slíkt kemur sér vel fyrir gesti sem og gististaðina sjálfa. Öllum ætti að vera ljóst að atvinnugreinin stendur og fellur með að gestunum sé gert til hæfis og gististaðir uppfylli væntingar þeirra. Þar fyrir utan sýnir reynslan frá öðrum löndum að stjörnugjöf er í mörgum tilfellum hjálpartæki fyrir gististaði sem vilja bæta þjónustu sína. Hafi menn í höndunum lista yfir þau atriði sem slík flokkun miðast við er mun auðveldara að gera þær úrbætur sem nýtast gestunum best. Flokkun gististaða með stjörnugjöf er fagnaðarefni fyrir aðila í gistiþjónustu og bæði viðskiptavinir og ferðaþjónustan í heild sinni hafa lengi beðið eftir að þetta skref yrði stigið. Í kjölfarið mun gisting hérlendis batna til lengri tíma litið og það mun auðvelda Íslendingum að standa sig betur á hinum alþjóðlega markaði. Sú flokkun sem hér um ræðir er ekki lögboðin. Henni fylgja þó fjölmargir kostir eins og áður er lýst og er skorað á alla þá sem hafa tilskilin leyfi til reksturs gistiþjónustu að taka þátt í verkefninu. Við flokkunina var stuðst við flokkunarkerfi samtaka ferðaþjónustunnar í Danmörku, HORESTA, en þar í landi er mjög góð reynsla af þessu starfi.
Flokkun Flokkunin er ekki sem slík altækur dómur um gæði viðkomandi gististaðar. Hún tekur eingöngu mið af þáttum sem hægt er að mæla með hlutlægum hætti, þ.e. hvort tiltekin aðstaða eða þjónusta er til staðar eða ekki. Um er að ræða úttekt á yfir 100 mismunandi atriðum. Gististaðir sem óska úttektar fá flokkun allt frá einni stjörnu og upp í 5 stjörnur samkvæmt þeim reglum sem samþykktar hafa verið. Yfirumsjón með flokkun gististaða er eins og áður segir í höndum Ferðamálaráðs sem skipað hefur sérstaka úrskurðarnefnd vegna verkefnisins. Nefnd þessi mun viðhalda þeim staðli sem samþykktur hefur verið, fylgjast með breytingum á stöðlum erlendis, veita undanþágur ef gild rök liggja fyrir og leysa úr ágreiningsmálum sem upp kunna að koma. Matsfulltrúar gera úttektir á gististöðunum og á grundvelli þeirra eru gerðar tillögur að stjörnugjöf viðkomandi staða. Fulltrúinn heimsækir þá síðan a.m.k. einu sinni á ári eftir það. Reglur um mat á gististöðum liggja frammi á skrifstofum Ferðamálaráðs.
Góð þátttaka Nú í mars hefur verið óskað eftir flokkun á um 60% gistirýmis á Íslandi í fyrstu umferð og virðist stefna í að strax í haust verði allt að 2/3 alls gistirýmis á landinu gæðaflokkað þegar flokkunin tekur gildi. Flokkunin sjálf er nú hafin.
Ein stjarna: Öll herbergi eru með handlaug og það er a.m.k. eitt salerni fyrir hver 10 herbergi. Aðgangur er að almenningssíma, morgunmatur er í boði og gestir geta komist inn og út allan sólarhringinn.
Tvær stjörnur: Til viðbótar við einnar stjörnu gististað er símaklefi eða almenningssími þar sem tryggt er að gestir geti talað í næði. Einnig bar eða afgreiðsla þar sem hægt er að kaupa léttar veitingar, ásamt veitingasal fyrir morgunmat og eftir aðstæðum fyrir aðrar máltíðir. Herbergi geta verið útbúin með baðherbergi en slíkt er þó ekki skilyrði.
Þrjár stjörnur: Til viðbótar eru öll herbergi með baði, síma, sjónvarpi, útvarpi og skrifborði. Afgreiðsla er opin að deginum til og hægt er að kaupa tóbak, lestrarefni o.fl. Hægt er að greiða fyrir vörur og þjónustu með greiðslukortum. Lyfta er í húsinu sé það fleiri en tvær hæðir.
Fjórar stjörnur Til viðbótar eru hægindastólar í öllum herbergjum, sjónvarp með fjarstýringu, gervihnattarásum og kvikmynda- og/eða vídeórás. Herbergisþjónusta er allan sólarhringinn, "alacarte" veitingastaður, minibar og möguleiki á að fá morgunmat sendan í herbergi. Fatahreinsun er einnig í boði.
Fimm stjörnur: Til viðbótar er gististaðurinn með lúxusinnréttingum. Öryggishólf eru í herbergjum og möguleiki á loftkælingu í svítum. Lyfta er í húsinu ef það er á fleiri en einni hæð. Hægt er að fá sendan mat á herbergi fram til kl. 23. Möguleiki er á ritaraþjónustu. Til staðar er innisundlaug eða líkamsræktaraðstaða þar sem starfar fagfólk. Verslun með gjafavörur er á gististaðnum og boðið er upp á flutning á farangri upp í herbergi.
Fulltrúar í Ferðamálaráði Í byrjun síðasta árs var gerð breyting á samsetningu Ferðamálaráðs og fulltrúum fækkað úr tuttugu og þremur í sjö. Nú eiga sæti í ráðinu tveir fulltrúar ríkisins, tveir frá samtökum fyrirtækja í ferðaþjónustu, tveir frá samtökum sveitarfélaga og einn frá Ferðamálasamtökum Íslands
Nú sitja í Ferðamálaráði: Skipaðir án tilnefningar: Tómas Ingi Olrich, alþingismaður - formaður Jón Kristjánsson, alþingismaður - varaformaður Tilnefndir af Sambandi íslenskra sveitarfélaga: Helgi Pétursson, borgarfulltrúi Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri Tilnefndir af Samtökum ferðaþjónustunnar: Steinn Lárusson, forstöðumaður Stefán Sigurðsson, veitingamaður Tilnefndur af Ferðamálasamtökum Íslands: Pétur Rafnsson, formaður FSÍ
Efni til landkynningar Íslandsbæklingur - Myndskreyttur landkynningarbæklingur með átta upplýsingasíðum "gulum síðum". Hann er gefinn út í 260 þúsund eintökum á 10 tungumálum; ensku, þýsku, dönsku, sænsku, norsku, finnsku, frönsku, ítölsku, spænsku, hollensku auk sérútgáfu fyrir Bandaríkjamarkað í 75 þúsund eintökum. Bæklingnum er dreift á viðkomandi markaðssvæðum og á ferðasýningum erlendis. Auglýsingaverð og verð á skráningu í "gulu síðurnar" fyrir 2001 bæklinginn mun liggja fyrir í apríl.
Handbók 2000 er gefin út tvisvar á ári, sumar og vetur. Þar má finna ýtarlegar upplýsingar um þjónustu fyrirtækja, ferðir, samgöngur, gistingu og margt fleira. Handbókin er seld í áskrift.
- Upplýsingavefur http://www.icetourist.is - sérvefur fyrir Bandaríkjamarkað http://www.goiceland.org
- Myndbönd; "Iceland it's all there" 8 mínútur, almennt landkynningarmyndband, talsett á ensku, þýsku, dönsku, frönsku, ítölsku eða spænsku.
- Reykjavík; almennt kynningarmyndband um höfuðborgina með áherslu á Reykjavík menningarborg 2000, lengd 8 mínútur.
- Skyggnusett - CD rom myndadiskur, ætlað fyrir söluaðila erlendis.
- Nýr bæklingur Ráðstefnuskrifstofu Íslands.
- Myndband um ráðstefnur og hvataferðir er væntanlegt innan skamms.
Fjárlög fyrir árið 2000 Við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2000 urðu nokkrar breytingar á fjárframlögum til ferðamála miðað við árið 1999. Hér verður getið nokkurra breytinga:
- Framlög til úrbóta á fjölsóttum ferðamannastöðum hækkuðu úr 14,8 milljónum í 35,8 milljónir.
- Framlag til upplýsingamiðlunar á landsbyggðinni tvöfaldaðist frá fyrra ári eða úr 5 milljónum í 10 milljónir.
- Veitt var 5 milljónum króna til rannsókna sem er nýr liður.
- Fjármagn til verkefna Ferðamálaráðs skv. 8. gr. laga um skipulag ferðamála hækkaði úr 68 milljónum í 78 milljónir.
- Fjárveiting til Markaðsráðsins hækkaðu úr kr. 30 milljónum í 50 milljónir.
- Ný fjárveiting er til kynningar- og markaðsverkefnisins í N-Ameríku, sem gengur undir heitinu Iceland Naturally. Fjárveitingin er 49 milljónir króna.
- Ýmsar aðrar breytingar urðu á einstökum liðum og er um að ræða aukningu til verkefna Ferðamálaráðs Íslands og sérstakra markaðsverkefna í
ferðamálum um 114,2 milljónir króna miðað við fjárlög síðasta árs.
- Þessu til viðbótar verður síðan 115 milljónum varið til markaðsverkefna erlendis samkvæmt ákvörðun Markaðsráðs sem kynnt er á öðrum stað
í fréttabréfinu.
Samþykkt fjárhagsáætlun Ferðamálaráðs árið 2000. (Allar tölur í þúsundum kr.) Áætlað:
| Rekstur á Íslandi |
62.700.- |
| Rekstur Frankfurt |
22.300.- |
| Rekstur New York |
25.300.- |
| Rekstur París |
12.000.- |
| Ráðstefnuskrifstofa Íslands |
4.000.- |
| Upplýsingamiðstöð ferðamála í Reykjavík |
3.700.- |
| Upplýsingamiðstöðin Leifsstöð |
3.000.- |
| Alþjóðlegt samstarf |
7.400.- |
| Kannanir og rannsóknir |
5.000.- |
| Innlend kynning |
5.000.- |
| Til úrbóta á fjölsóttum ferðamannastöðum |
35.800.- |
| Til upplýsingamiðstöðva á landsbyggðinni |
10.000.- |
| Til ferðamálasamtaka landshlutanna |
8.000.- |
| Til samninga vegna Færeyja og Grænlands |
10.200.- |
| Grunnþjónusta í markaðsmálum og landkynningu |
11.500.- |
|
Samtals: |
225.800.- |
Aukin þátttaka í fjölþjóðlegu starfi Nú fyrir skömmu var kjörin ný stjórn fyrir starfsemi Ferðamálaráðs Evrópu (ETC) í Bandaríkjunum. Fulltrúar landanna 29 í Bandaríkjunum kusu Einar Gustavsson sem formann. Er það í fyrsta sinn sem Íslendingur stýrir starfsemi ETC í Bandaríkjunum. Á árinu tökum við í fyrsta sinn við formennsku í Ferðamálaráði Norðurlanda og þá m.a. einnig í hlutafélaginu Scandinavian Tourism Inc í Bandaríkjunum, sem sér um sameiginlega starfsemi okkar þar. Ísland fer nú með formennsku í Ferðamálaráði Vestnorden og er Magnús Oddsson formaður þess. Þá hefur Magnús einnig setið í aðalframkvæmdastjórn Ferðamálaráðs Evrópu frá síðasta vori.
Iceland Naturally Á síðasta ári var gert samkomulag milli íslenskra stjórnvalda, Amerísk-Íslenska verslunarráðsins og nokkurra fyrirtækja um samstarf í kynningarmálum í N-Ameríku. Samkvæmt könnunum er það "Nature" sem er vænlegast til að koma sérkennum íslenskrar vöru og þjónustu á framfæri á þessum markaði. Því var ákveðið að efna til fimm ára átaks í N-Ameríku til kynningar á íslenskum vörum og þjónustu undir heitinu "Iceland Naturally". Alls verða til ráðstöfunar 350 milljónir króna á þessum fimm árum og koma 2/3 þeirrar upphæðar úr ríkissjóði og 1/3 frá fyrirtækjum sem hafa gerst aðilar að átakinu. Samgönguráðherra skipaði sjö manna verkefnastjórn til að hafa yfirumsjón með verkefninu og er Ómar Benediktsson formaður þeirrar stjórnar, en verkefnið er vistað á skrifstofu Ferðamálaráðs í New York.
Markaðsráðsverkefni Á síðastliðnu ári gerðu samgönguráðherra og fjármálaráðherra f.h. Ríkissjóðs Íslands og Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) og Reykjavíkurborg með sér samkomulag um stofnun Markaðsráðs ferðaþjónustunnar til að vinna að landkynningu Íslands og sameiginlegri markaðsstarfsemi ferðaþjónustunnar. Markmið samningsins voru að standa fyrir sameiginlegu átaki ríkis og annarra hagsmunaaðila í ferðaþjónustu til landkynningar og markaðsstarfsemi í því augnmiði að styrkja ferðaþjónustuna á Íslandi sem atvinnugrein og auka þar með gjaldeyristekjur þjóðarbúsins. Einnig var markmið samningsins að standa sameiginlega að nýtingu fjármuna til landkynningar og markaðsstarfsemi með það að markmiði að ráðstöfun þeirra verði betri og markvissari. Síðast en ekki síst var markmið samningsins að efla samvinnu hagsmuna-aðila í ferðaþjónustu. Samningurinn um Markaðsráð gildir til ársloka 2002. Hér verður getið helstu verkefna á liðnu ári og áætlana ráðsins um ráðstöfun fjár út gildistíma samningsins.
Verkefni árið 1999 Markaðsráð lagði árið 1999 megináherslu á að nýta stóra viðburði á árinu 2000 til landkynningar. Unnið var að gerð upplýsingaefnis og auglýsinga í tengslum við verkefnið Reykjavík - Menningarborg Evrópu árið 2000. Auk þess var lögð áhersla á gerð upplýsingaefnis sem kynnti landið utan háannatíma, þ.e. haust, vetur og vor. Kostnaður við þessi verkefni var um 36 milljónir króna, af þeim 50 milljónum sem voru til ráðstöfunar fyrir árið 1999. Voru þær 14 milljónir, sem óráðstafað var, færðar til yfirstandandi árs.
Unnið var að gerð eftirfarandi kynningarefnis:
- City-Break bæklingur
- Ný myndbönd
- Auglýsingaherferð í blöðum og tímaritum með áherslu á Reykjavík - menningarborg Evrópu árið 2000 í samstarfi við íslenska söluaðila.
- Átak á heilsuræktarstöðvum í Þýskalandi með áherslu á Ísland sem áhugaverðan áfangastað til heilsubótar utan háannatíma.
Fjárhagsáætlun og verkefni 2000 til 2001 Á þessu ári og því næsta leggur Markaðsráð ferðaþjónustunnar megináherslu á aðgerðir sem miða að því að auka kynningu og markaðssetningu á Íslandi sem spennandi áfangastaðar vetur, vor og haust. Tilgangurinn er að freista þess að lengja háannatímann. Drjúgur hluti þess fjármagns sem Markaðsráðið hefur úr að spila verður gagngert notaður í þessu skyni. Ráðið hefur einsett sér að fylgja þessari meginstefnu í markaðsmálum næstu þrjú til fjögur árin.
Áætlaður kostnaður vegna aukinnar landkynningar:
| Áætlaður kostnaður vegna aukinnar landkynningar: |
| |
|
| Norðurlönd: |
10 millj. |
| N-Ameríka FMR New York: |
20 millj. |
| Þýskaland FMR Frankfurt |
20 millj. |
| Frakkland FMR París: |
12 millj. |
| Stóra-Bretland: |
10 millj. |
| Holland: |
2 millj. |
| Grunnþjónusta í markaðsmálum og til landkynningar: |
35 millj.* |
|
Gjöld alls: |
109 millj. |
| |
|
| Tekjur: |
|
|
| Ríki: |
50 millj. |
| SAF: |
50 millj. |
| Reykjavíkurborg: |
15 millj. |
| Fært frá fyrra ári: |
14 millj. |
|
Tekjur alls: |
129 millj. |
| |
|
| *Áætlaður kostnaður við grunnþjónustu í markaðsmálum og landkynningu: |
| |
|
| Íslandsbæklingur 2001: |
20 millj. |
| Ferðasýningar: |
8 millj. |
| Móttaka fjölmiðla- og ferðaskrifstofufólks: |
4 millj. |
| Frekari uppbygging vefsíðna icetourist.is og goiceland.org: |
2 millj. |
| Myndbönd, CD-diskur, fjölföldun: |
1 millj. |
|
Samtals: |
35 millj. |
Handbókin Ísland Ferðamálaráð Íslands gefur út handbókina Ísland tvisvar á ári, í mars og í september. Bókin kemur út á ensku og íslensku og hefur að geyma grunnupplýsingar um allt að 1.200 aðila í ferðaþjónustu á Íslandi. Um er að ræða ákaflega mikilvægt uppflettirit fyrir alla þá sem starfa að skipulagningu og upplýsingagjöf í ferðaþjónustu.Í bókinni eru m.a. skráðar ítarlegar upplýsingar um það sem er á döfinni, samgöngur, s.s. rútur, báta, flug, strætisvagna, bílaleigur og leigubíla. Eins er verð á öllu gistirými í landinu tíundað: Hótel, gistiheimili, heimagisting, bændagisting, farfuglaheimili, skálar, tjaldsvæði og sumarhús. Upplýsingar um opnunartíma safna og upplýsingamiðstöðva um allt land er þar að finna. Einnig eru golfvellir, sundlaugar, bátaleigur, reiðhjólaleigur, hestaleigur, styttri og lengri ferðir taldar upp. Þetta og margt fleira er að finna í handbókinni. Skráning í bókina er ferðaþjónustuaðilum að kostnaðarlausu og er hún seld í áskrift. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Ferðamálaráðs á Akureyri, s: 461-2915.
Hreinsun hálendis Í sumar verða allir helstu hálendisvegir landsins hreinsaðir. Verkefni þetta er unnið af Ferðamálaráði og er verið að vinna að því þessa dagana að fá samstarfsaðila að verkefninu. Verkið verður unnið í lok sumars eða frá 15. ágúst til 10. september.
Skrifstofa í París Á síðasta ári var sú ákvörðun tekin að auka allt markaðs- og kynningarstarf Ferðamálaráðs í Frakklandi. Ákveðið var að opna þar skrifstofu og var forstöðumaður ráðinn frá 1. janúar 2000. Guðrún Kristinsdóttir var ráðin úr hópi 12 umsækjenda og hefur hún undanfarnar vikur unnið að opnun skrifstofunnar og skipulagningu markaðs- og kynningarstarfsins í Frakklandi.
Skrifstofan hefur nú verið opnuð og hefur mikið verið að gera frá fyrsta degi enda stendur nú yfir mesti ferðasýningatíminn á þessu svæði.
Könnun meðal "transit" farþega Á árinu 1999 var farið af stað með könnun meðal transit farþega í Leifsstöð. Um er að ræða samstarfsverkefni Ferðamálaráðs og Flugleiða. Markmiðið er að kanna hvort farþegar Flugleiða hafi haft vitneskju um "stop-over" möguleikann á Íslandi og hvort söluaðilar hafi kynnt hann þegar ferðin var keypt. Um 2500 farþegar tóku þátt í könnuninni. Spurningalistinn samanstendur af 15 spurningum þar sem meðal annars er spurt um tilgang ferðar, hvar ferðin var keypt, hvaðan og hvert var ferðast, ákvörðunina að ferðast með Flugleiðum, þekkingu farþega og söluaðila á Íslandi og það hversu vel söluaðilar kynntu "stop-over" möguleikann. Úrvinnsla stendur nú yfir og má vænta niðurstaðna í apríl næstkomandi. Svör verða unnin með svipuðum hætti og í heilsárskönnun Ferðamálaráðs, þ.e. eftir þjóðerni, markaðssvæðum, tilgangi ferðar, kyni, aldri og starfsstétt.
Fyrsti þemafundurinn Kannanir í ferðaþjónustu og notkun niðurstaðna 80-90 manns sóttu fyrsta þemafund Ferðamálaráðs á árinu, sem haldinn var 15. febrúar s.l. Umræðuefnið var kannanir í ferðaþjónustu og notkun niðurstaðna. Framsögu fluttu fulltrúar fyrirtækja úr gistiþættinum, flutningaþættinum og afþreyingarþættinum auk fulltrúa Ferðamálaráðs. Miklar umræður urðu um málefnið og er nú unnið úr þeim ábendingum sem fram komu.
Fram kom á fundinum mikill áhugi á að efla enn frekar allt starf við kannanir í ferðaþjónustu. Rætt var um mikilvægi þess að nýta niðurstöður kannana og rannsókna í starfsemi fyrirtækjanna. Fundarmenn komu með fjölda ábendinga um frekari vinnu við þennan nauðsynlega grunnþátt í atvinnugreininni. Í samræmi við samþykktir ráðsins verður næsti þemafundur í vor og fjallað þar um öryggismál.
Umhverfisverðlaun í hlut Bláa lónsins hf Bláa lónið hf. hlaut umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs árið 1999. Verðlaunin voru afhent á ferðamálaráðstefnunni á Egilsstöðum. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, afhenti Grími Sæmundsen framkvæmdastjóra Bláa lónsins hf. verðlaunin. Verðlaunin eru höggmyndin Harpa eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara. Í umsögn með verðlaununum kom fram að öll umgengni og mannvirki Bláa lónsins væru í mikilli sátt við umhverfið og féllu vel að hrauninu. Alls voru 11 fyrirtæki tilnefnd til umhverfisverðlauna Ferðamálaráðs.
Vestnorden í haust Að þessu sinni verður Vestnorden ferðakaupstefnan haldin hér á landi. Gert hefur verið samkomulag við Ferðaskrifstofu Íslands um framkvæmd sýningarinnar sem verður í Reykjavík 13. - 15. september. Þetta er í 15. skipti sem Vestnorden ferðakaupstefnan er haldin. Gera má ráð fyrir miðað við reynslu að á milli 400 og 500 aðilar taki þátt í kaupstefnunni. Á henni munu Vestnorden löndin þrjú, Færeyjar, Grænland og Ísland kynna framboð sitt í ferðaþjónustu fyrir erlendum söluaðilum sem sækja okkur heim þessa daga í september.
|