Ferðamálastofa

Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501
Skiptiborð opið 8-16 - Beinir símar

Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5511
Skiptiborð opið 8-16 - Beinir símar

Netfang: upplysingar[hjá]icetourist.is

English
Iðnaðarráðuneyti
Skrá netfanmg  Fmst




Ekki skráð/ur?
Nýskráning

Samkvæmt lögum um skipan ferðamála  merkir Ferðaskipuleggjandi aðili, hvort sem er einstaklingur eða lögaðili sem, hvort sem er að eigin frumkvæði eða eftir beiðni viðskiptavinar, setur saman, býður fram og selur í atvinnuskyni eftirfarandi ferðatengda þjónustu fyrir almenning:  

a. Skipulagningu ferða hópa og einstaklinga, innan lands og erlendis.

b. Skipulagningu funda, sýninga og ráðstefna og hvers kyns þjónustu því tengda, innan lands sem utan.

c. Hvers konar umboðs- og endursölu farmiða með skipum, bifreiðum, flugvélum eða járnbrautum.

d. Dagsferðir sem fela í sér ýmiss konar afþreyingu og frístundaiðju, svo sem hestaferðir, vélsleðaferðir, fljótasiglingar og ævintýraferðir með sérútbúnum ökutækjum.

e. Ferðir og veitingar sem hluta af veittri þjónustu.

Hver sá sem hyggst starfa sem ferðaskipuleggjandi eða ferðaskrifstofa skal hafa til þess leyfi Ferðamálastofu. Leyfisbréf skal gefið út af Ferðamálastofu og skal leyfishafi hafa það sýnilegt fyrir viðskiptavini á starfsstöð sinni. Ferðamálastofa skal eiga myndrænt auðkenni sem leyfishafi skal nota í hvers kyns auglýsingum um starfsemi sína og á heimasíðu sinni. Í sérstökum tilvikum er Ferðamálastofu heimilt að veita undanþágu frá ákvæði þessu og skal leyfishafi sækja um slíka undanþágu til Ferðamálastofu. Leyfi til reksturs ferðaskipuleggjanda og ferðaskrifstofu er ótímabundið. Þeim einum er heimilt að hafa orðið ferðaskipuleggjandi eða ferðaskrifstofa í nafni starfsemi sinnar sem hlotið hefur leyfi Ferðamálastofu.

Starfsemi ferðaskipuleggjanda og ferðaskrifstofu skal rekin á fastri starfsstöð sem opin skal almenningi á tilgreindum tíma. Heimilt er þó að víkja frá þessu skilyrði ef þjónusta er einungis rekin á rafrænan hátt og skal leyfishafi uppfylla skilyrði 6. gr. laga nr. 30/2002, um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, um það sem koma skal fram á heimasíðu.

Til að öðlast leyfi þarf umsækjandi eða forsvarsmaður umsækjanda, ef hann er lögaðili, að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

a. hafa búsetu á Íslandi
b. hafa náð 20 ára aldri
c. vera lögráða og hafa ekki á síðustu fjórum árum í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld né lögum um skipan ferðamála
d. hafa forræði á búi sínu
e. hafa ekki verið sviptur ferðaskipuleggjanda- eða ferðaskrifstofuleyfi á síðustu þremur árum frá umsókn.
f. leggja fram staðfestingu um ábyrgðartryggingu frá vátryggingafélagi.

Sjá nánar lög um skipan ferðamála 

Umsóknareyðublað
Hér að neðan á nálgast umsóknareyðublað fyrir ferðaskipuleggjendaleyfi. Umsóknina þarf að prenta út eftir að hún hefur verið útfyllt, undirrita hana og senda til Ferðamálastofu ásamt viðeigandi gögnum sem talin er upp á eyðublaðinu.

Umsóknareyðublaðið er Word-skjal. Best er að hægrismella á tengilinn hér fyrir neðan og velja skipunina “Save Target As” til að vista umsóknareyðublaðið á eigin tölvu áður en það er fyllt út. Nánari leiðbeiningar um útfyllingu eru á eyðublaðinu.

  Senda síðu  | Prenta síðu