Af hverju flokkun gististaða? Flokkun gististaða á Íslandi með stjörnugjöf er nauðsynlegur þáttur í uppbyggingu ferðaþjónustu hérlendis, ekki einvörðungu fyrir aðila í gistiþjónustu heldur fyrir alla ferðaþjónustuna . Bæði viðskiptavinir og ferðaþjónustan í heild sinni höfðu beðið lengi eftir að þetta skref yrði tekið en flokkunin hófst árið 2000 og hefur frá upphafi verið í umsjón Ferðamálastofu (áður Ferðamálaráð Íslands). Fullyrða má að flokkunin hafi þegar orðið gistiþjónustu á Íslandi til verulegs framdráttar. Um allan heim eru gestir vanir að hafa stjörnugjöf til viðmiðunar þegar þeir velja sér gististað því þó svo að þau atriði sem tekin eru inn í slíka stjörnugjöf geti verið mismunandi á milli landa þá hefur hún alþjóðlega merkingu og hjálpar fólki að velja sér gistingu í þeim gæðaflokki sem það óskar. Slíkt kemur sér vel fyrir bæði gesti og gististaði. Þar fyrir utan sýnir reynslan að flokkun gististaða með stjörnugjöf hefur í mörgum tilfellum reynst mikilvægt hjálpartæki fyrir gististaði sem vilja bæta þjónustu sína. Þannig mun flokkunin stuðla að því að gisting hérlendis mun batna þegar til lengri tíma litið og með því auðvelda Íslendingum að standa sig betur á hinum alþjóðlega markaði.
Sú flokkun sem hér um ræðir er ekki lögboðin. Henni fylgja þó fjölmargir kostir eins og áður er lýst og er skorað á alla þá sem hafa tilskilin leyfi til reksturs gistiþjónustu að taka þátt í verkefninu. Við flokkunina er stuðst við flokkunarkerfi samtaka veitinga- og gistihúsa í Danmörku, HORESTA, en þar í landi hefur verið mjög góð reynsla af þessu starfi síðan það hófst árið 1997.
Auk Íslendinga og Dana hafa eftirfarandi lönd tekið upp samskonar flokkunarkerfi: Grænland, Færeyjar, Svíþjóð, Eistland, Lettland og Litháen. Nýverið voru stofnuð samtök þessara landi í milli undir yfirskriftinni Nordic-Baltic Classification.
Fyrir hverja? Allir gististaðir á Íslandi sem eru með tilskilin leyfi geta óskað eftir því að vera flokkaðir.
Framkvæmd Þeim aðilum sem óska eftir að vera með er bent á að panta úttekt hið fyrsta. Þegar úttekt hefur farið fram og ef athugasemd hefur verið gerð fá gististaðir 2 mánuði til að gera nauðsynlegar úrbætur.
Forskoðun Mikilvægt er að aðilar kynni sér vel hvað stendur að baki hverjum flokki og komi upp þeirri aðstöðu eða þjónustu sem vera ber. Með þessu móti er hægt að spara seinni heimsókn úttektaraðila en ef úttektaraðili gerir meiriháttar athugasemdir þarf að skoða viðkomandi stað aftur með töluverðum aukakostnaði.
Kostnaður Kostnaðarskipting er tvíþætt annarsvegar grunngjald í tveimur þrepum og hinsvegar gjald fyrir hvert herbergi.
Þrep 1.: kr. 28.000,- Gististaðir með 1 - 29 herbergi. Þrep 2.: kr. 42.000,- Gististaðir með 30 herbergi eða fleiri. Herbergi: kr. 150,- Seinni skoðun: kr. 28.000,- Auka skilti: kr. 15.000,- auk burðargjalds
Dæmi: Gististaður með 18 herbergi kr. 30.700,- (28.000 + (18 x 150)) Gististaður með 100 herbergi kr. 57.000,- (42.000 + (100 x 150))
Hvar og hvernig er sótt um flokkun? Skrifstofa Ferðamálastofu á Akureyri tekur við umsóknum um flokkun og veitir nánari upplýsingar í síma 535-5510 eða netfangið upplysingar@icetourist.is. Umsóknir þurfa að berast í pósti eða á faxi, meðfylgjandi þarf að vera rekstrarleyfi frá sýslumanni.
Úttektaraðili: Ferðamálastofa sér um úttektir á gististöðum. Úttektaraðili er Alda Þrastardóttir verkefnisstjóri alda@icetourist.is
Fimm flokkar Flokkunin er ekki sem slík altækur dómur um gæði viðkomandi gististaðar. Hún tekur eingöngu mið af þáttum sem hægt er að mæla með hlutlægum hætti, þ.e. hvort tiltekin aðstaða eða þjónusta er til staðar eða ekki. Um er að ræða úttekt á yfir 100 mismunandi atriðum og hér að neðan eru einungis gefin dæmi um nokkur atriði innan hvers flokks.
Ein stjarna: Öll herbergi eru með handlaug og það er a.m.k. eitt salerni fyrir hver 10 herbergi. Aðgangur er að almenningssíma, morgunmatur er í boði og gestir geta komist inn og út/ komið og farið allan sólarhringinn.
Tvær stjörnur: Til viðbótar við einnar stjörnu gististað er símaklefi eða almenningssími þar sem tryggt er að gestir geti talað í næði. Einnig bar eða afgreiðsla þar sem hægt er að kaupa léttar veitingar, ásamt veitingasal fyrir morgunmat og eftir aðstæðum fyrir aðrar máltíðir. Herbergi geta verið útbúin með baðherbergi en slíkt er þó ekki skilyrði.
Þrjár stjörnur: Til viðbótar eru öll herbergi með baði, sjónvarpi, útvarpi og skrifborði. Fastur sími með bæjarlínu eða farsímalausn. Afgreiðsla er opin að deginum til og hægt er að kaupa smávöru, lestrarefni o.fl.ef slík þjónusta er ekki í boði í næsta nágrenni. Hægt er að greiða fyrir vörur og þjónustu með greiðslukortum. Tölva með internetaðgangi skal vera aðgengileg gestum í gestamóttöku. Lyfta er í húsinu ef hæðir með herbergjum eru þrjár eða fleiri auk mótttökuhæðar. Tveggja manna herbergi skulu að lágmarki vera 17 m2 og eins manns að lágmarki 14 m2.
Fjórar stjörnur: Til viðbótar er hægindastóll eða sæti á sófa í öllum herbergjum, sími, sjónvarp með fjarstýringu, gervihnattarásum og kvikmynda eða vídeórás. Netaðgangur á öllum herbergjum. Herbergisþjónusta er allan sólarhringinn eða minibar. "A la carte" veitingastaður á hótelinu, eða sambærilegt, opinn amk 6 kvöld vikunnar frá kl. 18:00.(Eldhús þarf ekki að vera á staðnum) Ef um miðborgarhótel er að ræða er sá möguleiki fyrir hendi að nota veitingastað, sömu gæða, í um eða innan við 200 m. fjarlægð. (Sjá nánar í flokkunarviðmiðum.) Möguleiki á að fá morgunmat sendan á herbergi. Fatahreinsun er einnig í boði. Lyfta er í húsinu ef hæðir með herbergjum eru tvær eða fleiri auk móttökuhæðar. Tveggja manna herbergi skulu að lágmarki vera 20m2 og eins manns að lágmarki 16m2.
Fimm stjörnur: Til viðbótar er gististaðurinn með lúxusinnréttingum. Öryggishólf eru á öllum herbergjum, baðsloppar og “turn down” þjónusta. Netaðgangur og aðgangur að síma samtímis á öllum herbergjum. Lyfta er í húsinu ef það er á fleiri en einni hæð. Hægt er að fá sendan mat á herbergi fram til kl. 23. Möguleiki er á ritaraþjónustu. Til staðar er innisundlaug eða líkamsræktaraðstaða þar sem starfar fagfólk. Verslun með gjafavörur og minjagripi er á gististaðnum og boðið er upp á flutning á farangri upp í herbergi. Tveggja manna herbergi skulu að lágmarki vera 26 m2 og eins manns að lágmarki 18m2.
ATH. Eftirfarandi á við alla stjörnuflokka: Reykingar eru að öllu jöfnu bannaðar á herbergjum, þó má gera undantekningar. Öll herbergi, bæði reyk og reyklaus skulu vera merkt.
Úrskurðarnefnd: Yfirumsjón með flokkun gististaða er í höndum Ferðamálastofu sem skipað hefur sérstaka úrskurðarnefnd vegna verkefnisins. Starfssvið hennar er eftirfarandi:
I . Viðhalda þeim staðli sem unnið er eftir og fylgjast vel með þróun og breytingum erlendis á gæðakröfum gististaða. II. Veita undanþágur frá reglum ef gild rök eru fyrir hendi. III. Leysa úr ágreiningsmálum sem upp kunna að koma.
Í úrskurðarnefndinni eiga sæti þrír fulltrúar skipaðir af Ferðamálastofu og þrír fulltrúar skipaðir af Samtökum ferðaþjónustunnar. Elías Bj. Gíslason, FMS, Forstöðumaður Upplýsinga-og þróunarsviðs Ferðamálastofu. (Formaður) Pétur Rafnsson, FMS, Verkefnastjóri hjá Ferðamálastofu og Formaður Ferðamálasamtaka Íslands. Sigrún Magnúsdóttir, FMS, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Kristófer Oliversson, SAF, Framkvæmdastjóri Center Hótela á Íslandi Áslaug Alfreðsdóttir, SAF, Hótelstjóri Hótels Ísafjarðar Diljá Gunnarsdóttir, SAF, Ráðstefnur og fundir ehf.
Hvernig fer matið fram? Matsfulltrúi gerir úttekt á gististaðnum í byrjun og kemur síðan í heimsókn einu sinni á ári og athugar hvaða atriði viðkomandi gististaður uppfyllir og hver ekki. Á grundvelli úttektar matsfulltrúa er viðkomandi gististað send skýrsla þar sem fram kemur í hvaða flokk hann fellur og jafnframt hvað þarf að gera svo staðurinn færist einni stjörnu ofar. Sé viðkomandi ekki ánægður með matið og telji sig ekki hafa fengið leiðréttingu hjá matsfulltrúa getur hann gert athugasemdir við úrskurðarnefndina sem hefur endanlegt úrskurðarvald í slíkum ágreiningsefnum.
Eftir að skýrslan er send hefur gististaðurinn tvo mánuði til að gera nauðsynlegar úrbætur og hafa þannig möguleika á að færast einni stjörnu ofar, eins og áður er nefnt. Eftir þann tíma fær gististaðurinn afhent skilti með þeim fjölda stjarna sem um ræðir og er það fest upp við innganginn.
Hvað felur flokkunin ekki í sér? Flokkun sem þessi tekur einungis til hluta sem hægt er að mæla með sannanlegum hætti. Hins vegar geta mörg önnur atriði skipt verulegu máli við markaðssetningu gististaða og "gæði" gistingar. þeim verður hver og einn að koma á framfæri með öðrum hætti. þetta geta t.d. verið þættir eins og: • Fallegt útsýni eða umhverfi • Vingjarnlegt andrúmsloft • Sérstakur arkitektúr • Gönguleiðir í nágrenninu • Nálægð við ýmsa þjónustu • Staðsetning • Aðgengi fyrir fatlaða • Leiksvæði
|