Velkomin á samskiptavef Ferðamálastofu. Hér má finna upplýsingar um íslenska ferðaþjónustu, svo sem tölfræði, fræðslurit, lagaumhverfi, markaðsmál, útgáfur o.fl. Notkun á efni vefsins er heimil, þó þannig að heimilda sé getið.
Ferðamálastofa

Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501

Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501

Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is

 English
 Atvinnuvegurinn.is
Iðnaðarráðuneyti

Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]

Tækifæri í kvikmyndatengdri ferðaþjónustu
7. febrúar 2012 til 7. febrúar 2012

Þriðjudaginn 7. febrúar boðar Íslandsstofa til fundar um möguleg tækifæri ferðaþjónustuaðila í kvikmyndatengdri ferðaþjónustu. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica kl. 10-12.

Á undanförnum árum hefur orðið mikil aukning á stórum verkefnum í kvikmyndagerð hér á landi. Í sumum tilfellum er um að ræða stórmyndir sem vakið hafa athygli kvikmyndaáhugafólks víða um heim. Áhugavert er að skoða hvaða tækifæri þetta skapar fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki til aukins vöruframboðs.

Dagskrá:

• Joakim Lind, markaðssérfræðingur og einn eiganda almannatengslafyrirtækisins Cloudberry communication í Svíþjóð:

-  Skammtíma- og langtímaáhrif framleiðslu og markaðssetningar kvikmynda
-  Stieg Larsson þríleikurinn og áhrif á ímynd Svíþjóðar
-  Áhrif kvikmyndanna um Wallander

• Harvey Edington, kvikmyndasérfræðingur hjá National Trust í Bretlandi:

-  Hvernig kvikmyndagerð getur stuðlað að auknum heimsóknum á vissa tökustaði og aukið sögulegt gildi þeirra í leiðinni 


National Trust hefur til umráða 200 sögufrægar byggingar og 970 km af strandlengju, auk rúmlega 2000 km2 landsvæðis, þar sem að meðaltali þrjú kvikmyndateymi eru að störfum á hverjum degi. Dæmi um kvikmyndir eru t.d. Pride and Prejudice, Harry Potter, The Dark Knight og Tomorrow Never Dies.

• Þór Kjartansson, kvikmyndaframleiðandi hjá Truenorth:
 
-  Möguleg tækifæri fyrir ferðaþjónustuaðila í gegnum kvikmyndagerð á Íslandi
-  Yfirlit yfir tökustaði á Íslandi

Fundarstjóri: Einar H. Tómasson – Film in Iceland

Skráning fer fram á islandsstofa@islandsstofa.is eða í síma 511 4000.

Nánari upplýsingar veita Björn H. Reynisson, bjorn@islandsstofa.is og Einar H. Tómasson, einar@filminiceland.com