Íslandsstofa skipuleggur röð funda í Evrópu með söluaðilum Íslandsferða.
Tilgangur fundanna er að koma á framfæri upplýsingum um verkefnið „Ísland allt árið" en sérstaklega verður rætt um markaðssetningu á Íslandi utan háannatíma. Þá gefst íslenskum fyrirtækjum færi á að funda með söluaðilum og kynna nýjungar í vöruframboði sínu veturinn 2012 -2013.
Drög að dagskrá:
Apríl
18.04 Frankfurt
19.04 München
25.04 París
26.04 Amsterdam
Maí
8.05 Kaupmannahöfn
9.05 Stokkhólmur
10.05 Osló
Hægt er að velja að taka þátt í stökum fundum eða öllum.
Sambærilegar vinnustofur eru fyrirhugaðar í USA síðar á árinu. Þær verða auglýstar sérstaklega.
Áhugasamir hafi samband fyrir 31. janúar.
Nánari upplýsingar veita Davíð Jóhannsson, david@islandsstofa.is,
Sunna Þórðardóttir sunna@islandsstofa.is og
Þorleifur Þór Jónsson thorleifur@islandsstofa.is eða í síma 511 4000








.gif)
.gif)
.gif)