Ferðamálastofa

Geirsgata 9 - 101 Reykjavík
Sími: 535-5500 - Fax: 535-5501

Strandgata 29 - 600 Akureyri
Sími: 535-5510 - Fax: 535-5501

Skiptiborð opið 8:30-16:00
upplysingar@ferdamalastofa.is

 English
 Atvinnuvegurinn.is
Iðnaðarráðuneyti

Ekki skráð/ur?
[ Nýskráning ]

NámskeiðNámskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva

Undanfarin ár hefur Ferðamálastofa staðið fyrir námskeiðum fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva og eru þau að jafnaði haldin á vorin. Mikilvægt er að a.m.k. nýtt starfsfólk komi á námskeiðið. Þýðingarmikið er að skapa tengsl á milli stöðva auk þess sem yfirbragð stöðvanna verður líkara innbyrðis ef sem flestir starfsmenn hafa setið námskeið.

Sendið fyrirspurnir á upplysingar@icetourist.is

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins ehf. var stofnuð af Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins. Hlutverk hennar er að vera samstarfsvettvangur stofnaðilanna um fullorðinsfræðslu og starfsmenntun í samstarfi við aðrar fræðslustofnanir á vegum aðildarsamtaka ASÍ og SA. Markmiðið er að veita starfsmönnum, sem ekki hafa lokið prófi frá framhaldsskóla, tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði. Starfsemin byggir á samþykktum félagsins og þjónustusamningi sem gerður hefur verið við menntamálaráðuneytið. Starfsemin beinist að þeim sem ekki hafa lokið námi úr framhaldsskóla. Sá markhópur er um 40% fólks á vinnumarkaði. Hlutfallið er breytilegt milli ára og landssvæða.

Sæmundar fróði – símenntun á sviði matvæla-, framleiðslu- og ferðaþjónustugreina
Sæmundar fróði er samstarfsverkefni Fræðsluráðs hótel- og matvælagreina og Hótel- og matvælaskólans í Kópavogi. Markmið Sæmundar fróða er að efla símenntun í hótel- og matvælagreinum og skyldum greinum þ.m.t. ferðaþjónustu, auka samstarf atvinnulífs og skóla til að auka samkeppnishæfni atvinnulífs og bjóða einstaklingum hagnýta og fræðandi fag þekkingu á sviði hótel- og matvælagreina og skyldra greina.

Ferðamálanám á Íslandi

VocMat
VocMat verkefnið hefur það markmið að þróa nýtt og sveigjanlegt starfsnám fyrir millistjórnendur og yfirstjórnendur í evrópskum ferðaþjónustufyrirtækjum. Að verkefninu standa þátttakendur frá háskólum og ferðamálasamtökum sem annast starfsmenntun í Skotlandi, Englandi, Eistlandi og á Íslandi. Félag ferðamálafulltrúa á Íslandi er m.a. þátttakandi í verkefninu. Heimasíða VocMat

Ferðamálanám erlendis

Bermuda:

Brasilía:

Bretland:

Frakkland:

Holland:

Kenya:

Sviss:

USA: